Fannst ÍBV brjóta fyrir vítadóminn Þorsteinn Hjálmsson skrifar 9. ágúst 2026 20:49 Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings. Vísir/Diego „Virkilega svekkjandi að missa þetta í jafntefli,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir 2-2 jafntefli við ÍBV í Víkinni í kvöld. Eyjamenn jöfnuðu leikinn úr vítaspyrnu undir lok leiksins og Víkingar því gert tvö fjögurra marka jafntefli í röð í Bestu deildinni. „
Mér fannst við stjórna leiknum vel. Við þurfum bara að vera miklu skarpari í teignum, við þeirra mark. Við fáum heldur betur færi til þess að koma okkur í góða stöðu og sigla þessu heim, en færanýtingin og nýtingin á stöðunum er ekki góð. Að sama skap erum við klaufar í mörkunum sem við fáum á okkur. Við þurfum að gera betur, þetta er ekki nógu gott,“ sagði Sölvi Geir um frammistöðu sinna manna og hélt áfram. „Stjórnunin á leiknum er svo sem fín. Við erum með þá í góðum stöðum og náum að pinna þá niður og koma okkur í góða stöðu, en við verðum að gera miklu miklu betur í báðum teigum.“ Eftir annað mark Víkinga í upphafi síðari hálfleiks þá minnkaði ákefðin töluvert í leiknum og leit lengi vel út að allir, Víkingar jafnt sem Eyjamenn, væru sáttir með stöðu mála í leiknum. Aðspurður út í þessa litlu ákefð sem Víkingar duttu í þrátt fyrir að vera með góða stjórn á leiknum, þá hafði Sölvi Geir þetta að segja: „Án þess að geta lagt fingur á það af hverju mið leggjumst svona niður. Það getur vel verið að þetta verði of þægilegt og menn halda að þetta komi að sjálfum sér. Við hættum einhvern veginn að ná að skapa okkur þessi færi seinni hlutann á seinni hálfleiknum. Orðnir þægilegir í 2-1 stöðu, í staðinn fyrir að herja á þá og sækja þriðja markið og klára þennan leik. Við þurfum að vera klínískari og klára þennan leik þegar við erum með hann í þessari stöðu. En við höldum þessu opnu fyrir ÍBV og gefum þeim blóð á tennurnar og þeir nýttu það undir lokin.“ Aðspurður út í vítaspyrnudóminn þá fannst Sölva Geir að hans menn hefðu átt að fá aukaspyrnu í aðdraganda marksins þegar Gunnar Vatnhamar féll í eigin vítateig eftir hornspyrnu. „Ég vil meina að það eigi sér stað brot fyrir. Gunnar Vatnhamar er tosaður niður fyrir, það greinilega fór fram hjá þeim. Síðan er þetta bara klaufalegt hjá okkur að setja löppina þetta hátt upp þegar þú ert ekki með stjórn á boltanum. Við þurfum að vera betur fókuseraðir og taka betri ákvarðanir þegar kemur að atriðum inn í teignum okkar og líka inn í teig andstæðinganna. Við verðum að vera betri í því.“ Félagaskiptaglugginn lokar nú 12. ágúst og var Sölvi Geir spurður út í hvort von væri á frekari hreyfingum í Víkinni. „Það verður að koma í ljós. Það er ekkert borðleggjandi núna, en við sjáum hvernig það fer.“
Víkingur Reykjavík Besta deild karla ÍBV Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Enski boltinn Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira