Ekki hægt að gefa „neinn afslátt af raunvaxtastiginu“ við þessar aðstæður
Við núverandi aðstæður getur peningastefnunefnd Seðlabankans ekki „gefið neinn afslátt“ af raunvaxtastiginu ef það á að takast á ná verðbólgunni niður í markmið, að mati sérfræðinga Acro verðbréfa. Þeir telja að nefndin sé því „nauðbeygð“ til að hækka vextina á næsta fundi og vara við því að verðbólgan geti farið upp í sex prósent síðar á árinu.
Tengdar fréttir
Vatnaskil gætu verið í kortunum og spá því að vaxtahækkunum sé lokið í bili
Þótt verðbólgan verði að líkindum í kringum fimm prósent á næstu mánuðum þá gætu verið vatnaskil í kortunum samhliða hratt lækkandi hrávöruverði og skýrum vísbendingum um hægari efnahagsumsvif. Greinendur Acro telja því að vaxtahækkunarferlinu sé lokið, í bili að minnsta kosti, og segja „nauðsynlegt“ að innlenda hagkerfið fái aukið súrefni á komandi misserum.
Hvað má launavísitalan hækka hratt eigi að ná verðbólgu niður í markmið?
Hækkunartaktur launavísitölunnar gæti verið á bilinu um 4,5 til 5,5 prósent á ári án þess að það kæmi í veg fyrir að verðbólgan myndi hjaðna í átt að markmiði, samkvæmt greiningu frá Kviku, nokkuð meira svigrúm en kemur fram í nýlegu mati Seðlabanka Íslands. Skýringin er meðal annars sögðu vera sú að launakostnaður getur vaxið hraðar en verð innlendrar neyslu, upp að því marki sem hagkerfið framleiðir vörur og þjónustu í öðrum hlutföllum en það neytir þeirra.