Í fyrsta sinn í úrslit á stórmóti: „Bomba á það og hafa gaman“ Aron Guðmundsson skrifar 14. ágúst 2026 10:00 Sindri Hrafn einbeittur í undanúrslitum spjótkastsins í gær. Það er stæll á kallinum, það er ekki hægt að segja annað. Vísir/Getty Sindri Hrafn Guðmundsson mun keppa í úrslitum í spjótkasti á EM í frjálsum íþróttum, í fyrsta sinn á sínum ferli, eftir taugatrekkjandi undanúrslit á mótinu í gær. Hann segist eiga meira inni og ætlar að eigin sögn að „bomba á þetta“ á morgun.
Það var síðasta kast Sindra Hrafns af þremur sem að kom honum inn í úrslit greinarinnar á EM. Kastið var upp á 79,21 metra. Var það umtalsvert lengra en fyrsta kast hans upp á 77,49 metra en í öðru kasti sínu átti Sindri eftir að gera ógilt. Sindri endaði í áttunda sæti síns kastriðils og þurfti því að bíða eftir úrslitunum úr seinni kasthópnum til þess að fá úr því skorið hvort hann kæmist áfram í úrslitin eða ekki. Tólf efstu kastararnir kæmust áfram. Aðeins þrír spjótkastarar úr seinni kasthópnum köstuðu lengra en Sindri og því fór hann áfram með ellefta besta árangurinn. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tryggir sig inn í úrslit á stórmóti. „Það var allt sett í síðasta kastið,“ segir Sindri Hrafn í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Það var ekkert annað í boði. Ég þurfti að kasta lengra til að eiga möguleika á því að komast áfram og ég gerði það. Það var geggjuð tilfinning sem fylgdi þessu. Ég var ekkert svo sáttur eftir fyrri kasthópinn þar sem ég var áttundi og vissi að það færu tólf áfram í úrslit. Maður var skeptískur um að komast áfram en svo horfði maður á seinni hópinn og hægt og rólega, einn á eftir öðrum, tókst þeim ekki að taka fram úr mér. Geggjað að komast í fyrsta sinn í úrslit á fullorðinsmóti. Ég hef farið í úrslit á nokkrum unglingamótum en það er allt annar pakki. Ég er spenntur fyrir því að kasta í úrslitum á laugardaginn.“ Stressið fór hægt og rólega Þó var biðin eftir því að sjá hvort hann kæmist áfram í úrslitin, með því að horfa á spjótkastarana í seinni hópnum reyna slá hann út, stressandi. „ Stressið fór hægt og rólega í síðustu umferðinni. Þá tók maður eftir því að það voru fjórir eftir og það máttu ekki þrír fara fram úr mér. Þegar það var komið í gegn var þetta ekkert nema hamingja og gleði. Ekki bara fyrir sjálfan mig heldur einnig konuna mina og fjölskyldu mina. Konan mín hefur staðið þétt við bakið á mér í þessu síðan að við kynntumst, það eru tíu ár síðan. Það er bara hrikalega gaman að sjá þetta raungerast. Ekki bara fyrir sjálfan mig heldur líka þá sem hafa stutt við bakið á mér.“ Á meira inni Úrslit spjótkastsins, þar sem að Sindri mætir aftur á stóra sviðið, fara fram á laugardaginn kemur og er persónulegt met Sindra í greininni upp á 82,55 metra. Finnst þér þú eiga meira inni? „Já algjörlega. Köstin í undanúrslitunum fóru ágætlega vegalengdir en mér fannst tæknilega séð og kraftlega séð að þetta hafi ekki verið eins gott og ég hef gert áður. Ég veit að ég á fullt inni. Vonandi getur maður sýnt það á laugardaginn. Maður fer inn í þessi úrslit með það að leiðarljósi að skemmta sér og kasta langt. Reyna komast í topp átta. Bomba á það og hafa gaman. Ég hef ætlað mér að komast í topp átta. Það er alveg klárt mál. Smá pressa en ekkert alvarlegt. Við erum að kasta spjóti. Þetta á bara að vera gaman.“ Ísland á réttri leið Sindri er þriðji Íslendingurinn sem keppir til úrslita á yfirstandandi Evrópumóti en fyrir höfðu sleggjukastararnir Hilmar Örn og Guðrún Karítast keppt til úrslita. Hilmar náði besta árangri Íslendings á Evrópumóti í frjálsum íþróttum í 24 ár með því að enda í sjöunda sæti. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður RÚV, benti á það í grein að Ísland hafi ekki átt svo marga keppendur í tólf efstu í sínum greinum á EM í 28 ár. „Það er frábært að sjá Hilmar og Guðrúnu komast í úrslit í sínum greinum. Það hjálpar bara og sýnir manni að allt getur gerst. Við erum mjög mörg búin að vera ferðast saman í landsliðsferðum yfir lengri tíma. Við Hilmar höfum farið margar ferðir á mót saman síðan árið 2014 og Guðni Valur líka. Frábært að sjá þennan árangur núna. Sýnir að Ísland er á réttri leið. Geðveikt að vera partur af því.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sport Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal að jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark Kimi Antonelli á ráspólnum á morgun „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ „Madrid með Mourinho vinnur titla“ „Markmið hjá þessum klúbbi að vinna sem flesta titla“ „Við ætlum bara að bæta í og gera enn þá betur“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur „Ömurleg niðurstaða“ Sjá meira