Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. ágúst 2026 16:15 Margot Robbie og Ryan Gosling fóru með hlutverk Barbie og Ken í Barbie og vilja fá almennilega borgað fyrir framhaldið. AP Photo/Chris Pizzello Barbie var aðsóknarmesta mynd ársins 2023, tilnefnd til fjölmargra verðlauna og olli hálfgerðu Barbie-æði. Fljótlega eftir frumsýninguna hófust viðræður um gerð framhaldsmyndar. Nú þremur árum síðar er Barbie 2 í lausu lofti vegna hárra launakrafa leikstjórans Gretu Gerwig, handritshöfundarins Noah Baumbach og stjarnanna Margot Robbie og Ryan Gosling.
Dagblaðið New York Times greindi nýverið frá því að Barbie-framhaldið væri í lausu lofti og að David Zaslav, framkvæmdastjóri Warner Bros. Discovery sem stendur í miðjum samrunaviðræðum við Paramount Discovery, hefði spyrnt við háum launakröfum Barbie-teymisins. Sjá einnig: Þegar ég fór með 49 öðrum gaurum í bíó Teymið sem um ræðir er leitt af Gretu Gerwig, leikstjóra og handritshöfundi fyrstu myndarinnar, og inniheldur jafnframt Noah Baumbach, meðhöfund og eiginmann Gerwig, og leikara Ryan Gosling og Margot Robbie en hún var jafnframt framleiðandi fyrstu myndarinnar. Ryan Gosling á setti Barbie myndarinnar með þeim Margot Robbie og Gretu Gerwig.Jaap Buitendijk/Warner Bros. Pictures/AP Samkvæmt heimildum New York Times hefur Warner Bros. gert sex tilboð sem öllum hefur verið hafnað. Nýjasta tilboðið var gert í vor og var, að sögn heimildarmanns, stærsta tilboð sem kvikmyndaverið hefðu nokkurn tímann gert fyrir kvikmyndagerðarteymi. Annar heimildarmaður New York Times andmælti þeirri staðhæfingu og sagði að tilboðið væri kannski sögulegt en þóknanir fyrir einstaklinga teymisins væru það ekki. Það sem flækir málið fyrir Warner Bros. er að kvikmyndaverið hefur einungis fjóra mánuði til að koma kvikmyndinni í framleiðslu áður en það missir kvikmyndaréttinn aftur til leikfangarisans Mattel. Takist það ekki mun Mattel heldur ekki getað notað neitt úr fyrri myndinni og myndi þurfa að endurræsa kvikmyndaseríuna. Vilja tugi milljóna fyrirfram Samkvæmt heimildum Variety eru Gerwig og Baumbach komin með hugmynd að framhaldinu en gefa þó ekkert upp um það fyrr en búið er að skrifa undir samninga. Þeir sem Variety hefur talað við hjá öðrum kvikmyndaverum eru agndofa yfir deilunum. Variety segir kröfur Robbie, Gosling, Gerwig og Baumbach fela í sér töluverðar launahækkanir með fyrirframgreiðslum og drjúgum bakendagreiðslum. Gosling er sagður krefjast 20 milljóna dala fyrir að leika í myndinni og að Robbie sem hagnaðist um 50 milljónir dala af fyrstu myndinni vilji enn meira. Slíkar tölur þyki svimandi háar fyrir mynd sem muni taka mörg ár að framleiða. Ryan Gosling leikur Ken, Greta Gerwig leikstýrir og Margot Robbie leikur Barbie í Barbie.Jordan Strauss/AP Einn heimildarmaður Variety sagði listræna teymið vera sátt með þær upphæðir sem þeim hefur verið boðið fyrirfram en ekki eins sátt með það sem þau fái í kjölfar útgáfunnar. Annar heimildarmaður, sem er sagður vel inni í viðræðunum, sagði að framhaldið muni ekki verða að veruleika nema Warner Bros. gefi eftir. „Hvernig er það ekki í hag hluthafa Warner Bros. Discovery að gera framhald að stærstu kvikmynd í sögu kvikmyndaversins?“ sagði sá við Variety. Þá undruðust margir þeirra sem Variety ræddi við að Zaslav væri að stoppa framhald sem gæti skilað kvikmyndaverinu mörg hundruð milljónum dala vegna nísku í samningaviðræðum. Zaslav hefur verið umdeildur síðan hann tók við sem forstjóri kvikmyndaversins, sleppt því að gefa út tilbúnar kvikmyndir á borð við Batgirl og Coyote vs. Acme til að nýta sem skattafrádrátt og í staðinn gefið út mörg stór flopp. Viðræðurnar eru líka algjör höfuðverkur fyrir Mattel sem vilja væntanlega reyna að leika eftir velgengni fyrri myndarinnar sem er erfitt að gera án Robbie og Gosling. Það sem gæti skorið Barbie-framhaldið úr snörunni er samruni WBD og Paramount en David Ellison, forstjóri Paramount, gæti hæglega ákveðið að endursemja við Mattel ef samruninn gengur eftir. Hvorki kvikmyndagerðarfólkið, leikararnir, WBD né Mattel hafa tjáð sig um samningaviðræðurnar.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Tengdar fréttir Margot Robbie sektaði þá sem ekki mættu í bleiku Margot Robbie, ástralska Hollywood leikkonan sem fer með hlutverk í Barbie myndinni, skyldaði alla á setti myndarinnar til þess að mæta í bleiku einu sinni í viku. Þeir sem ekki gegndu voru sektaðir. 10. júlí 2023 14:52 Fer frá Barbie til Narníu Netflix ætlar að koma fantasíunni Narníu aftur á stóra skjáinn og hefur leikstjórinn Greta Gerwig gert tveggja mynda samning við streymisveiturisann. Hún er nýbúin að leikstýra Barbie sem kemur út seinna í mánuðinum. 4. júlí 2023 10:39 Ryan Gosling sársvekktur yfir Óskarstilnefningunum Kanadíski leikarinn Ryan Gosling segist vera vonsvikinn og sársvekktur vegna þess að Greta Gerwig, leikstjóri Barbie og Margot Robbie, aðalleikkona myndarinnar, hafi ekki verið tilnefndar til Óskarsverðlauna líkt og hann sjálfur. 24. janúar 2024 08:31 Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira
Margot Robbie sektaði þá sem ekki mættu í bleiku Margot Robbie, ástralska Hollywood leikkonan sem fer með hlutverk í Barbie myndinni, skyldaði alla á setti myndarinnar til þess að mæta í bleiku einu sinni í viku. Þeir sem ekki gegndu voru sektaðir. 10. júlí 2023 14:52
Fer frá Barbie til Narníu Netflix ætlar að koma fantasíunni Narníu aftur á stóra skjáinn og hefur leikstjórinn Greta Gerwig gert tveggja mynda samning við streymisveiturisann. Hún er nýbúin að leikstýra Barbie sem kemur út seinna í mánuðinum. 4. júlí 2023 10:39
Ryan Gosling sársvekktur yfir Óskarstilnefningunum Kanadíski leikarinn Ryan Gosling segist vera vonsvikinn og sársvekktur vegna þess að Greta Gerwig, leikstjóri Barbie og Margot Robbie, aðalleikkona myndarinnar, hafi ekki verið tilnefndar til Óskarsverðlauna líkt og hann sjálfur. 24. janúar 2024 08:31