Golf

Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úr­slit

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili er að skrifa nýjan kafla í íslenska golfsögu á opna breska áhugamannamótinu í piltaflokki.
Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili er að skrifa nýjan kafla í íslenska golfsögu á opna breska áhugamannamótinu í piltaflokki. @gsigolf

Íslenski kylfingurinn Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili er kominn í úrslit opna breska áhugamannamótsins í piltaflokki.

Óliver Elí sigraði nýkrýndan Evrópumeistara unglinga, Tao Pemerika, í bráðabana með glæsilegum fugli á 22. holu.

Hann hefur nú unnið fimm leiki í röð í holukeppninni á Gailes Links í Skotlandi.

Í úrslitum mætir Óliver Svíanum Ludwig Libera í 36 holu úrslitaleik á morgun.

Óliver hefur leikið frábært golf síðustu daga. Hann var jafn í 118. sæti eftir fyrsta hring höggleiksins, en svaraði með frábærum öðrum hring upp á 66 högg. Það var fjórða besta skor dagsins og tryggði honum sæti í 64 manna holukeppninni þar sem hann er á mikilli sigurgöngu.

Óliver Elí verður á morgun fyrsti Íslendingurinn sem keppir til úrslita á einu virtasta og sterkasta ungmennamóti heims.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×