Viðskipti innlent

Guð­mundur Fertram í nýtt hlut­verk hjá Coloplast

Árni Sæberg skrifar
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis. Vísir/Arnar

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri sára- og vefjaviðgerðasviðs Coloplast, sem keypti Kerecis á sínum tíma. Þess í stað tekur hann við stöðu aðalráðgjafa forstjóra Coloplast í nýsköpun og tækni.

Í tilkynningu þess efnis frá Coloplast segir að í nýju hlutverki, sem hafi þegar tekið við, muni Guðmundur Fertram einbeita sér að því að efla nýsköpunarstefnu Coloplast, sérstaklega á sviði líftækni, háþróaðrar sárameðferðar og nýrrar tækni.

„Ástríða mín fyrir heilbrigðisþjónustu, sáragræðslu og nýsköpun er jafnmikil og áður. Ég er spenntur fyrir því að takast á við þetta nýja hlutverk og nýta reynslu mína og frumkvöðlasjónarmið til að þróa næstu kynslóð tækni og lausna í sárameðferð. Ég hlakka til að vinna náið með teyminu og hjálpa til við að breyta vænlegum hugmyndum í þýðingarmiklar lausnir sem geta skipt sköpum fyrir sjúklinga,“ er haft eftir honum.

Forstjórinn tekur við

Þá segir í tilkynningu að Gavin Wood, forstjóri Coloplast, taki við stjórn sára- og vefjaviðgerðasviðs félagsins til bráðabirgða. Coloplast keypti Kerecis árið 2023 fyrir um 180 milljarða króna og síðan á hefur íslenska fyrirtækið verið uppistaðan í sára- og vefjaviðgerðasviði Coloplast.

„Framlag [Guðmundar] Fertrams til Kerecis og Coloplast hefur verið einstakt. Sem stofnandi Kerecis hefur hann byggt upp glæsilega tækni sem byggir á djúpri klínískri innsýn, auk fyrirtækis með sterka frumkvöðlamenningu. Það gleður mig að Coloplast muni áfram njóta góðs af reynslu og nýsköpunarhugsun Fertrams í nýju hlutverki hans. Þegar við leiðum sára- og vefjaviðgerðasviðið inn í næsta kafla hlakka ég til að byggja á þeim sterka grunni sem [Guðmundur] Fertram og teymið hafa skapað,“ er haft eftir Wood.

Nýr mannauðsstjóri 

Þá er í tilkynningunni einnig greint frá ráðningu Amöndu Rajkumar í stöðu framkvæmdastjóra mannauðsmála hjá Coloplast.

Hún hafi þriggja áratuga alþjóðlega reynslu af stjórnun mannauðsmála hjá alþjóðlegum neytenda- og fjármálaþjónustufyrirtækjum. Síðast hafi hún gengt stöðu framkvæmdastjóra mannauðsmála, starfsfólks og menningu hjá Adidas, þar sem hún hafi borið ábyrgð á alþjóðlegum mannauðsmálum fyrirtækisins. Þar áður hafi hún verið framkvæmdastjóri mannauðsmála fyrir Ameríku hjá BNP Paribas. Fyrr á ferlinum hafi hún gegnt stjórnunarstöðum í mannauðsmálum hjá JPMorgan Chase.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×