Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Andri Broddason skrifar 18. ágúst 2026 18:33 Alexander Albon mun keyra fyrir Williams á næsta tímabili. Bryn Lennon/Getty Images Alex Albon hefur framlengt samning sinn við Williams í Formúlu 1. Nýr samningur mun gilda fram yfir næsta tímabil.
Árið 2022 gekk Alex Albon til liðs við Williams eftir að hafa verið eitt ár sem varaökumaður fyrir bæði Red Bull og Alpha Tauri. Honum virðist líða vel hjá Williams en liðið náði óvæntu fimmta sæti í heimsmeistaramóti bílasmiða á síðasta tímabili. Núverandi tímabil hefur ekki gengið alveg jafn vel og á síðasta ári og situr liðið nú í níunda sæti með aðeins ellefu stig eftir ellefu keppnir. Albon lítur aðeins á árið í ár sem frávik. „Eitt erfitt ár gefur ekki alla myndina og það gefur mér meiri metnað að halda uppbyggingu liðsins áfram og reyna að gera það besta sem ég get fyrir liðið. Sagan okkar er ekki búin, ég mun setja alla mína einbeitingu í að gera allt sem ég get til að færa liðið ofar,“ sagði Albon eftir að hafa framlengt samninginn sinn. View this post on Instagram A post shared by Atlassian Williams F1 Team (@williamsf1team) Síðan James Vowles, liðsstjóri Williams, gekk til liðs við bílaframleiðandann hefur markmið hans verið að ná góðu gengi eftir reglubreytingarnar sem komu í byrjun tímabils. Það virðist ekki hafa gengið hjá honum og varð liðið í verri stöðu en árið áður. Með því að framlengja samning við Alex Albon er möguleiki á að ná aftur góðu gengi fyrir bílaframleiðandann. Alex Albon byrjaði ferilinn sinn hjá Toro Rosso sem var systurlið Red Bull. Eftir að hafa staðið sig vel þar fékk hann strax að fara í aðallið Red Bull á sínu fyrsta tímabili í Formúlu 1. Það reyndist ekki vera jafn mikið lukkuskref og hann vonaðist til og var hann lengi að koma sér í takt við nýja bílinn. Eftir tímabilið árið 2020 var hann ekki lengur ökumaður Red Bull heldur aðeins varaökumaður fyrir bæði aðallið Red Bull og systurliðið. Eftir að hann gekk til liðs við Williams hefur hann keyrt frábærlega og er einn af eftirsóttustu ökumönnum í Formúlu 1. Lítið er um möguleika á að skipta um lið og hefur hann ákveðið að halda áfram hjá Williams og skína þar.
Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Leik lokið Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton Antonelli fór aftastur af stað en vann ótrúlegan sigur Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Sjá meira