Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Freyja Þórisdóttir skrifar 20. ágúst 2026 11:10 Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur víða látið til sín taka í viðskiptalífinu. Hann rekur í dag farfuglaheimili í Ljósafossskóla sem var áður heimavistarskóli. Vísir/Samsett Lögreglan innsiglaði húsnæði í Grímsnesi á mánudag en það var í sameiginlegum aðgerðum Skattsins, Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og heilbrigðiseftirlitsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu snúa aðgerðirnar að gistingu sem athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson rekur á svæðinu en hann hefur áður verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot. Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir í samtali við blaðamann að aðgerðirnar á mánudag hafi gengið vel en hún greindi einnig frá því að eitt húsnæði sé enn innsiglað og rannsókn á málinu sé ekki lokið. Komið að læstum dyrum Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson á og rekur farfuglaheimilið Ljósafosskóli Hostel og lúxusgistinguna Golden Circle Dome en samkvæmt heimildum fréttastofu var ráðist í umfangsmiklar aðgerðir á báðum stöðum síðasta mánudag, þann 17. ágúst. Starfsfólk hafi verið flutt á brott og gestir sem áttu bókaða gistingu komið að læstum dyrum dagana á eftir. Haft var samband við Sverri sem hefur ekki viljað tjá sig um málið að svo stöddu. Umfangsmikil vinna Íris gat ekki greint frá því að hverra beiðni var ráðist í aðgerðirnar, einungis að þær hafi verið samstarf skattsins, ASÍ, heilbrigðiseftirlitsins og lögreglunnar sem sé kölluð til þegar um grun um lögbrot sé að ræða. Aðgerðirnar hafi verið vinnustaðaeftirlit sem hún gat staðfest að hefði gengið vel. Vinnan sé umfangsmikil og það sé ekki hægt að staðfesta fleira í bili. Í skriflegu svari sagði Saga Kjartansdóttir, sérfræðings í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ, lokunina ekki hafa verið að beiðni sambandsins. Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið. Sverrir hefur stundað ýmis konar viðskipti í rúman aldafjórðung en hann hefur meðal annars komið að kaupum á gulli og demöntum, stundað lánastarfsemi, veitinga- og gistihúsarekstur, starfsmannaleigu og fleira. Í nóvember 2025 var greint frá því að hann hafi verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot með því að hafa, sem stjórnandi fjögurra félaga, ekki staðið skil á alls 59,7 milljónum króna í opinber gjöld. Lögreglumál Heilbrigðiseftirlit ASÍ Ferðaþjónusta Grímsnes- og Grafningshreppur Tengdar fréttir Eigandi Nýju vínbúðarinnar ákærður fyrir skattsvik Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar sem komið hefur að alls kyns athyglisverðum rekstri undanfarin ár, hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir skattsvik og peningaþvætti í rekstri þriggja einkahlutafélaga sem öll hafa orðið gjaldþrota og verið afskráð. Málið verður þingfest í mars. 18. janúar 2022 07:01 Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Sverri Einari Eiríkssyni hefur verið gert að greiða fimm hundruð þúsund króna sekt úr eigin vasa vegna notkunar B Reykjavík ehf. á vörumerkinu b5. Félagið sjálft þurfti að greiða hálfa milljón vegna noktunnarinnar en vörumerkið er í eigu KG ehf. 21. maí 2026 21:03 Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Sverrir Einar Eiríksson, eigandi skemmtistaðanna B5 og Exit og áfengisverslunarinnar Nýju vínbúðarinnar, segir rekstur B5 hafa verið þungan í kjölfar afskipta lögreglu af staðnum. Inngrip Ríkisskattstjóra sé því eðlilegt hvað B5 varðar, en ekki hvað varðar Exit og Nýju vínbúðina. 26. apríl 2024 17:35 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Sjá meira
Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir í samtali við blaðamann að aðgerðirnar á mánudag hafi gengið vel en hún greindi einnig frá því að eitt húsnæði sé enn innsiglað og rannsókn á málinu sé ekki lokið. Komið að læstum dyrum Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson á og rekur farfuglaheimilið Ljósafosskóli Hostel og lúxusgistinguna Golden Circle Dome en samkvæmt heimildum fréttastofu var ráðist í umfangsmiklar aðgerðir á báðum stöðum síðasta mánudag, þann 17. ágúst. Starfsfólk hafi verið flutt á brott og gestir sem áttu bókaða gistingu komið að læstum dyrum dagana á eftir. Haft var samband við Sverri sem hefur ekki viljað tjá sig um málið að svo stöddu. Umfangsmikil vinna Íris gat ekki greint frá því að hverra beiðni var ráðist í aðgerðirnar, einungis að þær hafi verið samstarf skattsins, ASÍ, heilbrigðiseftirlitsins og lögreglunnar sem sé kölluð til þegar um grun um lögbrot sé að ræða. Aðgerðirnar hafi verið vinnustaðaeftirlit sem hún gat staðfest að hefði gengið vel. Vinnan sé umfangsmikil og það sé ekki hægt að staðfesta fleira í bili. Í skriflegu svari sagði Saga Kjartansdóttir, sérfræðings í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ, lokunina ekki hafa verið að beiðni sambandsins. Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið. Sverrir hefur stundað ýmis konar viðskipti í rúman aldafjórðung en hann hefur meðal annars komið að kaupum á gulli og demöntum, stundað lánastarfsemi, veitinga- og gistihúsarekstur, starfsmannaleigu og fleira. Í nóvember 2025 var greint frá því að hann hafi verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot með því að hafa, sem stjórnandi fjögurra félaga, ekki staðið skil á alls 59,7 milljónum króna í opinber gjöld.
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.
Lögreglumál Heilbrigðiseftirlit ASÍ Ferðaþjónusta Grímsnes- og Grafningshreppur Tengdar fréttir Eigandi Nýju vínbúðarinnar ákærður fyrir skattsvik Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar sem komið hefur að alls kyns athyglisverðum rekstri undanfarin ár, hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir skattsvik og peningaþvætti í rekstri þriggja einkahlutafélaga sem öll hafa orðið gjaldþrota og verið afskráð. Málið verður þingfest í mars. 18. janúar 2022 07:01 Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Sverri Einari Eiríkssyni hefur verið gert að greiða fimm hundruð þúsund króna sekt úr eigin vasa vegna notkunar B Reykjavík ehf. á vörumerkinu b5. Félagið sjálft þurfti að greiða hálfa milljón vegna noktunnarinnar en vörumerkið er í eigu KG ehf. 21. maí 2026 21:03 Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Sverrir Einar Eiríksson, eigandi skemmtistaðanna B5 og Exit og áfengisverslunarinnar Nýju vínbúðarinnar, segir rekstur B5 hafa verið þungan í kjölfar afskipta lögreglu af staðnum. Inngrip Ríkisskattstjóra sé því eðlilegt hvað B5 varðar, en ekki hvað varðar Exit og Nýju vínbúðina. 26. apríl 2024 17:35 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Sjá meira
Eigandi Nýju vínbúðarinnar ákærður fyrir skattsvik Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar sem komið hefur að alls kyns athyglisverðum rekstri undanfarin ár, hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir skattsvik og peningaþvætti í rekstri þriggja einkahlutafélaga sem öll hafa orðið gjaldþrota og verið afskráð. Málið verður þingfest í mars. 18. janúar 2022 07:01
Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Sverri Einari Eiríkssyni hefur verið gert að greiða fimm hundruð þúsund króna sekt úr eigin vasa vegna notkunar B Reykjavík ehf. á vörumerkinu b5. Félagið sjálft þurfti að greiða hálfa milljón vegna noktunnarinnar en vörumerkið er í eigu KG ehf. 21. maí 2026 21:03
Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Sverrir Einar Eiríksson, eigandi skemmtistaðanna B5 og Exit og áfengisverslunarinnar Nýju vínbúðarinnar, segir rekstur B5 hafa verið þungan í kjölfar afskipta lögreglu af staðnum. Inngrip Ríkisskattstjóra sé því eðlilegt hvað B5 varðar, en ekki hvað varðar Exit og Nýju vínbúðina. 26. apríl 2024 17:35