Fótbolti

Stefán Teitur með tvennu í þægi­legum bikarsigri

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Stefán Teitur Þórðarson fagnar marki fyrir Hannover 96. 
Stefán Teitur Þórðarson fagnar marki fyrir Hannover 96.  Getty/Swen Pförtner

Stefán Teitur Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir Hannover 96 í þægilegum 1-9 sigri gegn SV Hemelingen í fyrstu umferð þýska bikarsins.

Utandeildarliðið Hemelingen reyndist ekki mikil fyrirstaða fyrir Hannover í dag. Gott var fyrir Hannover að geta tekið gleði sína með sigri en liðið hefur tapað fyrstu tveimur deildarleikjum tímabilsins.

Stefán Teitur skoraði fyrsta mark leiksins á 5. mínútu leiksins eftir stoðsendingu Waniss Tabi og bætti svo öðru marki við á 19. mínútu.

Lars Timo Gindorf skoraði þrennu, Benedikt Pichler skoraði tvennu, Marcel Hartel og Taycan Etcibasi skoruðu svo sitt hvort markið en Ledjon Fikaj skoraði mark heimamanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×