Íslenski boltinn

Kvaddi stuðnings­menn Víkings: „Það er hluti af mér núna“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gunnar Vatnhamar hefur verið afar farsæll hjá Víkingi.
Gunnar Vatnhamar hefur verið afar farsæll hjá Víkingi. vísir/diego

Gunnar Vatnhamar lék sinn síðasta heimaleik fyrir Víking þegar liðið lagði Val, 2-0, í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Færeyingurinn átti erfitt með að lýsa tilfinningum sínum í leikslok.

„Þetta er súrsætt augnablik, er ánægður með að hafa upplifað þetta en sem stendur er þetta erfitt,“ sagði Gunnar eftir leikinn í Víkinni.

Færeyski varnarmaðurinn hefur verið hluti af gríðarlega sigursælu liði. Bjóst hann við því þegar hann kom?

„Auðvitað vonaði ég það þegar ég kom. Ég lærði hratt um liðið, þjálfarann og hugmyndafræðina. Ég vissi frá byrjun að við værum með gott lið og gætum staðið okkar vel. Að það myndi ganga svona vel? Ég veit það ekki. Ég hef trú á eigin getu og hef lagt hart að mér. Við leggjum allir hart að okkur og sem betur fer hefur gengið vel,“ sagði Gunnar.

„Fyrsti bikarúrslitaleikurinn sem við unnum var ótrúleg upplifun. Þegar við unnum tvennuna, það var geðveiki. Því miður var ég meiddur í deildakeppninni í Sambandsdeildinni en ég er mjög stoltur af því að við komumst í útsláttarkeppnina. Það var risastórt. En að vinna gullmedalíur, held það sé hápunkturinn.“

Leikur kvöldsins var markalaus í hálfleik en Víkingar spýttu í lófana í þeim seinni.

„Við fengum góð ráð frá þjálfarateyminu, hvað þyrfti að bæta. Við héldum áfram og vissum að framherjarnir okkar væru frábærir í teignum. Þurftum að halda markinu hreinu og þá vissum við að hæfileikarnir fram á við myndu skila marki,“ sagði Gunnar.

Víkingur mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta Vatnhamars-fjölskyldunnar.

„Það er hluti af mér núna, stór hluti af fjölskyldunni minni og ég er þegar farinn að hlakka til að snúa aftur að sjá alla. Við eigum einn leik aftur og ég vil vinna þennan til að komast í deildarkeppnina. Það er markmiðið núna og svo mun ég fylgjast með frá Danmörku.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×