Viðskipti innlent

Samninga­við­ræðum Sýnar og Símans lokið án sam­komu­lags

Freyja Þórisdóttir skrifar
 Heildarvirði vef- og útvarpsmiðla Sýnar er sagt um 5,2 milljarðar króna.
 Heildarvirði vef- og útvarpsmiðla Sýnar er sagt um 5,2 milljarðar króna. Vísir

Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar.

Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu Sýnar til Kauphallar en Sýn og Ásar, móðurfélag Símans, undirrituðu skilmálaskjal um fyrirhuguð kaup 12. mars síðastliðinn. 

Samkvæmt tilkynningunni er frestur samkvæmt skilmálaskjalinu nú liðinn og samningaviðræðum félaganna þar með lokið. Einkaréttur Ása til samningaviðræðna er jafnframt fallinn niður.

Sýn segir að félagið hafi uppfyllt þær forsendur sem settar voru í skilmálaskjalið, þar á meðal forsendur fyrir umsömdu kaupverði sem tengdust tekjum og rekstrarafkomu miðlanna.

Náðu ekki saman um viðskiptin

Vefmiðlar og útvarpsstöðvar Sýnar verða því áfram innan félagsins. Í tilkynningunni segir að um sé að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem muni áfram styðja við kjarnastarfsemi Sýnar.

Niðurstaðan hafi ekki áhrif á útgefna afkomuspá Sýnar fyrir árið 2026.

Í tilkynningu Ása hf. til kauphallar segir jafnframt að eftir viðræður aðila í kjölfar áreiðanleikakönnunar sé ljóst að aðilar munu ekki ná saman um viðskiptin. Því hafi verið ákveðið að falla frá viðskiptunum.

Rekstrareiningin sem um ræddi inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal.

Vísir er í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum

Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×