Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar 24. ágúst 2026 12:52 Ég hef eytt sumrinu í að skrifa um beislið. Um að gervigreind fái aldrei lausan tauminn þar sem viðkvæm gögn búa, í fyrirtækjum, stofnunum og hugbúnaðarkerfum þjóðarinnar. Um að vél sem enginn skilur til fulls verði að ganga í taum sem allir geta lesið. Ekkert af því dreg ég til baka. En heiðarleg spurning á skilið heiðarlegt svar: er þá hvergi óhætt að sleppa? Jú. Og einmitt þar liggja stærstu tækifæri Íslands. Reglan er einföld Laus taumur er öruggur þar sem villan er ódýr, afturkræf og sannprófunin innbyggð. Hann strekkist þar sem villan er dýr, gögnin viðkvæm eða hreyfingin óafturkræf. Þetta er öll reglan. Hún útskýrir hvers vegna sama tæknin getur verið hættuleg á einum stað og hrein gjöf á öðrum. Fimm staðir þar sem má sleppa Fyrsti staðurinn er kennslan. Þolinmóðasti einkakennari sögunnar er kominn: vakinn allan sólarhringinn, lagar sig að hverjum nemanda, finnst engin spurning of heimsk og rukkar ekki tímakaup. Fyrir fullorðinn, sjálfstæðan nemanda má taumurinn vera nánast alveg laus, því verkefnið, prófið og raunveruleikinn leiðrétta jafnóðum. Villan kostar smá tíma, ekki traust. Einn fyrirvari, og hann er prinsipp: barn fær kennara með vélinni, ekki vél í stað kennara. Annar staðurinn er rannsóknastofan með innbyggðan dómara. Þar sem tilgátan er ódýr og prófið strangt má vélin giska frjálst. Hún má spá fyrir um byggingu milljóna próteina, því tilraunastofan sker úr. Hún má leita að nýjum efnum og lyfjakandídötum, því mælingin fellir dóminn. Hún má leita að stærðfræðisönnunum, því sönnunarforrit (proof checker) staðfestir hverja einustu línu áður en nokkur maður trúir henni. Náttúran og rökfræðin halda dómsvaldinu. Þess vegna má vélin hlaupa. Þriðji staðurinn er hermirinn (simulation). Róbót má detta tíu þúsund sinnum í sýndarheimi án þess að nokkur meiðist. Lyf má skima í tölvu áður en nokkur tilraun hefst. Raforkukerfi og umferð má stressprófa í friði. Sandkassinn er einmitt til þess að þar megi taumurinn liggja á jörðinni. Fjórði staðurinn er leitin í opnum gögnum. Að fínkemba milljónir gervihnattamynda af jöklum, skógareldum og skipaferðum. Að hlusta á fuglahljóð heillar sumarnætur. Að lesa skjalasöfn heillar aldar eða kortleggja hafsbotn. Vélin bendir, maðurinn skoðar fundinn. Hún má vinna ein alla nóttina, því hún tekur enga ákvörðun. Hún finnur bara. Fimmti staðurinn er skissuvinnan. Hugmyndir, fyrstu drög, tilbrigði, þýðingaruppköst. Ekkert er ákveðið fyrr en manneskja velur, og villan kostar ekkert nema rafmagn. Svo er mótreglan, og hún er jafn einföld: um leið og peningar, heilsa, réttindi, viðkvæm gögn eða hreyfiorka koma við sögu strekkist taumurinn. Þess vegna verður lögfræðiagent aldrei á þessum lista, sama hve klár hann verður. Listinn hér að ofan á eitt sameiginlegt: þar er ekkert í húfi fyrr en manneskja ákveður að gera eitthvað við niðurstöðuna. Þrjú verk fyrir stjórnvöld Fyrsta verkið er að gera gervigreindina að innviðum, eins og rafmagnið og heita vatnið. Við eigum söguna sjálf: Reykjavík hitaði sig með almannaveitu á meðan aðrar borgir brenndu kolum, og uppskar ódýrustu og hreinustu húshitun sem um getur. Sama hugsun á við núna, ný veita: reikniafl (compute) og gagnaver í almannaeigu, seld á jafnræðisgrunni, arðurinn heim. Ég hef áður skrifað að þjóðarsjóðurinn okkar heiti Landsvirkjun. Þetta er næsti kafli þeirrar sögu. Og varnaglinn fylgir: innviðir án eignarhalds eru ekki forskot heldur nýlenda með fínna nafni. Annað verkið er að setja menntakerfið í startup mode. Þegar vélin tekur við fyrirlestrinum og endurtekningunni fær skólinn loksins tíma í það sem vélin getur ekki: að velja verkefni sem skipta máli, bera ábyrgð á niðurstöðu, vinna í teymi og sannreyna. Prófessorarnir hætta að vera upptökutæki og verða það sem þeir áttu alltaf að vera: mentorar, fyrirlesarar og leiðbeinendur bestu teymanna. Háskólinn færist nær því að vera verksmiðja lítilla teyma sem leysa raunveruleg verkefni þvert á allar greinar samfélagsins, í heilbrigðismálum, orku, landbúnaði, stjórnsýslu og listum. Þarf að umbylta öllu í einu? Nei. Byrjum með eina deild og eitt tilraunaár, regluverkssandkassa menntakerfisins, mælum árangurinn og birtum hann. En einn varnagli strax: startup leysir vandamál morgundagsins, grunnrannsóknir búa til lausnir næsta áratugar. Skóli sem hættir að rannsaka étur útsæðið sitt. Þriðja verkið er að láta nýsköpunarféð hreyfast á sama hraða og fólkið sem sækir um það. Í dag mælist umsóknarferlið í mánuðum á meðan lítil teymi lifa og deyja á vikum. Sjóðurinn sem á orkuna og reikniaflið á líka að verðlauna bestu teymin: hröð dómnefnd, sjálfstæð og gagnsæ, sem verðlaunar, hafnar eða stýrir áfram. Og ríkið sjálft sem fyrsti viðskiptavinur, því fyrsti reikningurinn er sterkasta verðlaun sem lítið teymi getur fengið. Tækni- og nýsköpunarsjóðirnir eiga heima þar sem orkan, reikniaflið og verkefnin mætast. Kjarninn Þetta þrennt er ekki útgjaldaliður. Þetta er verkaskipting þjóðar sem ætlar sér eitthvað. Ríkið leggur rafmagnið, reikniaflið og leyfið til að prófa. Unga fólkið leggur hugmyndirnar. Vélin margfaldar og maðurinn samþykkir. Taumurinn er ekki bremsa á framtíðina. Hann er ástæðan fyrir því að við þorum að hleypa henni á skeið. Höfundur er gervigreindar- og framtíðarfræðingur og stofnandi Alvitur.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Skoðun Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar