Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Björn Berg Gunnarsson skrifar 25. ágúst 2026 07:00 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ Þetta þykir mér afar áhugaverð spurning og ég spyr mig oft að þessu sama. Lífsgæðakapphlaupið er mörgum mjög mikilvægt og stundum litlar hömlur á einkaneyslu. Auðvitað getur verið gaman að leyfa sér munað, en oft virðist einmitt eytt um efni fram. Það getur verið snúið að svara hvernig á þessu stendur, en við getum gert tilraun. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Allir eru að gera það gott nema ég Það gæti verið að „allir“ séu að eyða svona miklu vegna þess að „allir“ eru að eyða svona miklu. Við erum hjarðdýr og eltum oft fjöldann. Við fylgjum öðrum Íslendingum á sömu sumarleyfisstaðina, stundum sömu áhugamálin, drekkum sömu djúsana og allt virðist þetta sveiflast eftir tískubylgjum og allir fylgja með. Mér er minnistætt þegar tískumógúll sagði mér eitt sinn að svo virðist sem allt í einu hafi „allir“ verið komnir með Louis Vuitton töskur og fyrr en varði þurftu þær að vera tvær. Ekki vegna þess að fjárhagurinn hafi batnað heldur einfaldlega til þess að herma eftir öðrum. Töskurnar þurftu ekki einu sinni að vera ekta. Ég hugsa að okkur hætti til að halda að íburður sé merki um velmegun. Það þarf hann ekki að vera. Þegar þú sérð vinafólk þitt mæta í splúnkunýju dressi frá hvirfli til ilja vegna þess að það ætlar að prófa að fara í þetta padel sem allir eru að tala um, ert þú ekki að missa af neinu. Kannski er þetta ekki velmegun, heldur agaleysi. Ég á þetta skilið Mögulega eru sumir líka að verðlauna sig. Tilefnin geta verið mörg og stundum látum við þau vega þyngra en fjárhagslegt svigrúm okkar leyfir. Kannski kaupir fólk sér eitthvað vegna þess að því líður illa. Eða af því að það hefur náð áfanga. Kannski er búið að vera erfitt í vinnunni eða kominn föstudagur. Erum við kannski að eyða peningum með þessum hætti? Þá gæti verið gott að doka aðeins við, greina nauðsynleg útgjöld frá þeim sem gaman væri að geta leyft sér og meta hvert svigrúmið raunverulega er. Það getur til dæmis verið gagnlegt að reikna út fjárhagsleg áhrif þess að skipta hluta neyslunnar út fyrir ódýrari kosti eða sleppa tilteknum útgjöldum alfarið. Reikna má út áhrifin hér. Sjálfstraust er mikilvægt Við skulum passa upp á tvennt þegar við sjáum aðra leyfa sér mikil útgjöld. Annað er sá mikilvægi eiginleiki að geta samglaðst öðrum án þess að leyfa velgengni þeirra að draga úr okkar eigin ánægju. Kannski er svigrúm þeirra mun meira en okkar og það er ekki tekið úr okkar vösum. Hitt er sjálfstraustið sem þarf til þess að elta ekki aðra. Eftir því sem sjálfstraust er meira og fólk er öruggara í eigin skinni verður auðveldara að láta sér nægja ódýrari bíl en nágranninn, vitandi að við eigum okkar ökutæki skuldlaust en bíllinn í næstu innkeyrslu er væntanlega skuldsettur upp í rjáfur. Við eigum auðveldara með að skipuleggja hófleg útgjöld í fríum, gefa ódýrari gjafir og ganga í ódýrari fötum. Það kemur nefnilega að skuldadögum hjá okkur öllum og það er alveg ljóst að þeir sem eiga í heilbrigðu sambandi við peningana sína og láta síður á sér bera munu vera öruggari, þola efnahagssveiflur og breytingar á eigin aðstæðum betur og líklega búa við betri fjárhag þegar fram líða stundir. Það er hollt að býsnast Mikið er gott að þú sért svona hissa á fólkinu í kringum þig. Ég get vel ímyndað mér að þú hafir velt fyrir þér hvort þessi hegðun þeirra sé skrítin, eða hvort þú sért kannski að neita þér um eitthvað sem eðlilegt er að leyfa sér. Þetta er heilbrigðismerki. Þetta þýðir að þú átt væntanlega það dýrmætasta sem hægt er að eiga í persónulegum fjármálum, en það eru holl grunnviðhorf. Þú ert hissa á þeim vegna þess að þú veist að það er ekki eðlilegt að kaupa óþarfa með neyslulánum. Ekki spá of mikið í öðrum og ekki meta eigin árangur í fjármálum út frá einkaneyslu annarra. Fjármál heimilisins Fjármálin með Birni Berg Tengdar fréttir Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00 Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03 Mest lesið Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira
Þetta þykir mér afar áhugaverð spurning og ég spyr mig oft að þessu sama. Lífsgæðakapphlaupið er mörgum mjög mikilvægt og stundum litlar hömlur á einkaneyslu. Auðvitað getur verið gaman að leyfa sér munað, en oft virðist einmitt eytt um efni fram. Það getur verið snúið að svara hvernig á þessu stendur, en við getum gert tilraun. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Allir eru að gera það gott nema ég Það gæti verið að „allir“ séu að eyða svona miklu vegna þess að „allir“ eru að eyða svona miklu. Við erum hjarðdýr og eltum oft fjöldann. Við fylgjum öðrum Íslendingum á sömu sumarleyfisstaðina, stundum sömu áhugamálin, drekkum sömu djúsana og allt virðist þetta sveiflast eftir tískubylgjum og allir fylgja með. Mér er minnistætt þegar tískumógúll sagði mér eitt sinn að svo virðist sem allt í einu hafi „allir“ verið komnir með Louis Vuitton töskur og fyrr en varði þurftu þær að vera tvær. Ekki vegna þess að fjárhagurinn hafi batnað heldur einfaldlega til þess að herma eftir öðrum. Töskurnar þurftu ekki einu sinni að vera ekta. Ég hugsa að okkur hætti til að halda að íburður sé merki um velmegun. Það þarf hann ekki að vera. Þegar þú sérð vinafólk þitt mæta í splúnkunýju dressi frá hvirfli til ilja vegna þess að það ætlar að prófa að fara í þetta padel sem allir eru að tala um, ert þú ekki að missa af neinu. Kannski er þetta ekki velmegun, heldur agaleysi. Ég á þetta skilið Mögulega eru sumir líka að verðlauna sig. Tilefnin geta verið mörg og stundum látum við þau vega þyngra en fjárhagslegt svigrúm okkar leyfir. Kannski kaupir fólk sér eitthvað vegna þess að því líður illa. Eða af því að það hefur náð áfanga. Kannski er búið að vera erfitt í vinnunni eða kominn föstudagur. Erum við kannski að eyða peningum með þessum hætti? Þá gæti verið gott að doka aðeins við, greina nauðsynleg útgjöld frá þeim sem gaman væri að geta leyft sér og meta hvert svigrúmið raunverulega er. Það getur til dæmis verið gagnlegt að reikna út fjárhagsleg áhrif þess að skipta hluta neyslunnar út fyrir ódýrari kosti eða sleppa tilteknum útgjöldum alfarið. Reikna má út áhrifin hér. Sjálfstraust er mikilvægt Við skulum passa upp á tvennt þegar við sjáum aðra leyfa sér mikil útgjöld. Annað er sá mikilvægi eiginleiki að geta samglaðst öðrum án þess að leyfa velgengni þeirra að draga úr okkar eigin ánægju. Kannski er svigrúm þeirra mun meira en okkar og það er ekki tekið úr okkar vösum. Hitt er sjálfstraustið sem þarf til þess að elta ekki aðra. Eftir því sem sjálfstraust er meira og fólk er öruggara í eigin skinni verður auðveldara að láta sér nægja ódýrari bíl en nágranninn, vitandi að við eigum okkar ökutæki skuldlaust en bíllinn í næstu innkeyrslu er væntanlega skuldsettur upp í rjáfur. Við eigum auðveldara með að skipuleggja hófleg útgjöld í fríum, gefa ódýrari gjafir og ganga í ódýrari fötum. Það kemur nefnilega að skuldadögum hjá okkur öllum og það er alveg ljóst að þeir sem eiga í heilbrigðu sambandi við peningana sína og láta síður á sér bera munu vera öruggari, þola efnahagssveiflur og breytingar á eigin aðstæðum betur og líklega búa við betri fjárhag þegar fram líða stundir. Það er hollt að býsnast Mikið er gott að þú sért svona hissa á fólkinu í kringum þig. Ég get vel ímyndað mér að þú hafir velt fyrir þér hvort þessi hegðun þeirra sé skrítin, eða hvort þú sért kannski að neita þér um eitthvað sem eðlilegt er að leyfa sér. Þetta er heilbrigðismerki. Þetta þýðir að þú átt væntanlega það dýrmætasta sem hægt er að eiga í persónulegum fjármálum, en það eru holl grunnviðhorf. Þú ert hissa á þeim vegna þess að þú veist að það er ekki eðlilegt að kaupa óþarfa með neyslulánum. Ekki spá of mikið í öðrum og ekki meta eigin árangur í fjármálum út frá einkaneyslu annarra.
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármál heimilisins Fjármálin með Birni Berg Tengdar fréttir Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00 Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03 Mest lesið Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira
Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00
Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03