Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Sindri Sverrisson skrifar 27. ágúst 2026 15:47 Luis Enrique hefur leitt PSG til sigurs í Meistaradeild Evrópu tvö ár í röð. Getty/Mike Egerton Fjöldi stórleikja er á dagskrá í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu en dregið var í dag í beinni útsendingu á Vísi. Hákon Arnar Haraldsson á fyrir höndum leiki við Englandsmeistara Arsenal og Þýskalandsmeistara Bayern. Alls eru 36 lið í keppninni líkt og tvö síðustu tímabil og spila þau öll saman í einni deild. Fyrir dráttinn var þeim skipt í fjóra níu liða styrkleikaflokka og fékk hvert lið tvo mótherja úr hverjum flokki — annan á heimavelli en hinn á útivelli. Hvert lið spilar því átta leiki. Átta efstu liðin í deildinni komast svo beint í 16-liða úrslit keppninnar og liðin í 9.-24. sæti komast í umspil um sæti í 16-liða úrslitunum. Arsenal fær Mourinho í heimsókn Úr efsta styrkleikaflokki má nefna að Evrópumeistarar PSG, Barcelona og Manchester City mætast innbyrðis. Englandsmeistarar Arsenal mæta meðal annars José Mourinho og hans mönnum í Real Madrid, og þýsku liðunum Bayern og Dortmund. Liverpool var nokkuð heppið með drátt en mætir meðal annars Atlético Madrid og Inter. Norsku liðin tvö í keppninni, Bodö/Glimt og Viking, drógust bæði gegn Bayern og Atlético. Leikjadagskrá liðanna í efsta styrkleikaflokki. Hvert lið fær átta leiki, tvo gegn liðum úr hverjum styrkleikaflokki og þar af annan á heimavelli en hinn á útivelli.UEFA Man. Utd mætir Bayern og Atlético Í 2. styrkleikaflokki voru meðal annars Aston Villa og Manchester United sem nú er með í keppninni á nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru, og því í fyrsta sinn með eftir breytingar á fyrirkomulaginu. United mætir Bayern og Atlético Madrid, sem og Roma, Sporting, Leipzig, Villarreal, Sabah frá Aserbaísjan og lærisveinum Cesc Fabregas í Como sem nú eru með í fyrsta sinn. Leikir liðanna í styrkleikaflokki 2. Hvert lið spilar átta leiki.UEFA Hákon mætir ensku meisturunum í London Í þriðja styrkleikaflokki var meðal annars Lille, lið Hákonar Arnars Haraldssonar, sem mæta mun Bayern á heimavelli og Arsenal á útivelli. Lille mun einnig spila við Roma, Real Betis, Galatasaray, Bodö/Glimt, Slovan Bratislava og Stuttgart. Leikir liðanna í 3. styrkleikaflokki. Hákon Arnar Haraldsson er leikmaður Lille.UEFA Amin Cosic gæti spilað þar sem úrslitaleikurinn fer fram Noregsmeistarar Viking, sem keyptu Amin Cosic frá KR í sumar, eiga krefjandi verkefni fyrir höndum. Þeir fá Bayern í heimsókn og sækja Atlético Madrid heim, á Metropolitano-leikvanginn í Madrid þar sem úrslitaleikur keppninnar fer svo fram laugardaginn 5. júní. Viking mætir einnig PSV Eindhoven, Aston Villa, Feyenoord, Napoli, Stuttgart og Sabah. Leikir liðanna í neðsta styrkleikaflokki. Amin Cosic er leikmaður Noregsmeistara Viking.UEFA Keppni í Meistaradeildinni hefst dagana 8.-10. september en leikjadagskráin öll mun liggja fyrir í síðasta lagi á laugardag. Leikdagar í Meistaradeild Evrópu: 1. leikdagur: 8.–10. september 2. leikdagur: 13.-14. október 3. leikdagur: 20.-21. október 4. leikdagur: 3.-4. nóvember 5. leikdagur: 24.-25. nóvember 6. leikdagur: 8.-9. desember 7. leikdagur: 19.-20. janúar 8. leikdagur: 27. janúar Styrkleikaflokkana fjóra fyrir dráttinn í dag má sjá hér að neðan. Styrkleikaflokkur 1 Paris Saint-Germain (Frakkland) Bayern München (Þýskaland) Real Madrid (Spánn) Liverpool (England) Inter Milan (Ítalía) Manchester City (England) Arsenal (England) Barcelona (Spánn) Atlético Madrid (Spánn) Styrkleikaflokkur 2 Borussia Dortmund (Þýskaland) Roma (Ítalía) Sporting CP (Portúgal) Aston Villa (England) Porto (Portúgal) Manchester United (England) Club Brugge (Belgía) Real Betis (Spánn) PSV Eindhoven (Holland) Styrkleikaflokkur 3 Feyenoord (Holland) Lille (Frakkland) Bodø/Glimt (Noregur) Napoli (Ítalía) RB Leipzig (Þýskaland) Villarreal (Spánn) Fenerbahçe (Tyrkland) Shakhtar Donetsk (Úkraína) Galatasaray (Tyrkland) Styrkleikaflokkur 4 Como (Ítalía) Lens (Frakkland) Stuttgart (Þýskaland) Slavia Prag (Tékkland) Viking (Noregur) Sabah (Aserbaídsjan) LASK (Austurríki) AEK Aþena (Grikkland) Slovan Bratislava (Slóvakía) Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Real Madrid CF FC Barcelona Arsenal FC Aston Villa FC Liverpool FC Manchester City Manchester United Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Hagræddi sannleikanum um heilsu Mortensen fyrir leik“ Sport Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira
Alls eru 36 lið í keppninni líkt og tvö síðustu tímabil og spila þau öll saman í einni deild. Fyrir dráttinn var þeim skipt í fjóra níu liða styrkleikaflokka og fékk hvert lið tvo mótherja úr hverjum flokki — annan á heimavelli en hinn á útivelli. Hvert lið spilar því átta leiki. Átta efstu liðin í deildinni komast svo beint í 16-liða úrslit keppninnar og liðin í 9.-24. sæti komast í umspil um sæti í 16-liða úrslitunum. Arsenal fær Mourinho í heimsókn Úr efsta styrkleikaflokki má nefna að Evrópumeistarar PSG, Barcelona og Manchester City mætast innbyrðis. Englandsmeistarar Arsenal mæta meðal annars José Mourinho og hans mönnum í Real Madrid, og þýsku liðunum Bayern og Dortmund. Liverpool var nokkuð heppið með drátt en mætir meðal annars Atlético Madrid og Inter. Norsku liðin tvö í keppninni, Bodö/Glimt og Viking, drógust bæði gegn Bayern og Atlético. Leikjadagskrá liðanna í efsta styrkleikaflokki. Hvert lið fær átta leiki, tvo gegn liðum úr hverjum styrkleikaflokki og þar af annan á heimavelli en hinn á útivelli.UEFA Man. Utd mætir Bayern og Atlético Í 2. styrkleikaflokki voru meðal annars Aston Villa og Manchester United sem nú er með í keppninni á nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru, og því í fyrsta sinn með eftir breytingar á fyrirkomulaginu. United mætir Bayern og Atlético Madrid, sem og Roma, Sporting, Leipzig, Villarreal, Sabah frá Aserbaísjan og lærisveinum Cesc Fabregas í Como sem nú eru með í fyrsta sinn. Leikir liðanna í styrkleikaflokki 2. Hvert lið spilar átta leiki.UEFA Hákon mætir ensku meisturunum í London Í þriðja styrkleikaflokki var meðal annars Lille, lið Hákonar Arnars Haraldssonar, sem mæta mun Bayern á heimavelli og Arsenal á útivelli. Lille mun einnig spila við Roma, Real Betis, Galatasaray, Bodö/Glimt, Slovan Bratislava og Stuttgart. Leikir liðanna í 3. styrkleikaflokki. Hákon Arnar Haraldsson er leikmaður Lille.UEFA Amin Cosic gæti spilað þar sem úrslitaleikurinn fer fram Noregsmeistarar Viking, sem keyptu Amin Cosic frá KR í sumar, eiga krefjandi verkefni fyrir höndum. Þeir fá Bayern í heimsókn og sækja Atlético Madrid heim, á Metropolitano-leikvanginn í Madrid þar sem úrslitaleikur keppninnar fer svo fram laugardaginn 5. júní. Viking mætir einnig PSV Eindhoven, Aston Villa, Feyenoord, Napoli, Stuttgart og Sabah. Leikir liðanna í neðsta styrkleikaflokki. Amin Cosic er leikmaður Noregsmeistara Viking.UEFA Keppni í Meistaradeildinni hefst dagana 8.-10. september en leikjadagskráin öll mun liggja fyrir í síðasta lagi á laugardag. Leikdagar í Meistaradeild Evrópu: 1. leikdagur: 8.–10. september 2. leikdagur: 13.-14. október 3. leikdagur: 20.-21. október 4. leikdagur: 3.-4. nóvember 5. leikdagur: 24.-25. nóvember 6. leikdagur: 8.-9. desember 7. leikdagur: 19.-20. janúar 8. leikdagur: 27. janúar Styrkleikaflokkana fjóra fyrir dráttinn í dag má sjá hér að neðan. Styrkleikaflokkur 1 Paris Saint-Germain (Frakkland) Bayern München (Þýskaland) Real Madrid (Spánn) Liverpool (England) Inter Milan (Ítalía) Manchester City (England) Arsenal (England) Barcelona (Spánn) Atlético Madrid (Spánn) Styrkleikaflokkur 2 Borussia Dortmund (Þýskaland) Roma (Ítalía) Sporting CP (Portúgal) Aston Villa (England) Porto (Portúgal) Manchester United (England) Club Brugge (Belgía) Real Betis (Spánn) PSV Eindhoven (Holland) Styrkleikaflokkur 3 Feyenoord (Holland) Lille (Frakkland) Bodø/Glimt (Noregur) Napoli (Ítalía) RB Leipzig (Þýskaland) Villarreal (Spánn) Fenerbahçe (Tyrkland) Shakhtar Donetsk (Úkraína) Galatasaray (Tyrkland) Styrkleikaflokkur 4 Como (Ítalía) Lens (Frakkland) Stuttgart (Þýskaland) Slavia Prag (Tékkland) Viking (Noregur) Sabah (Aserbaídsjan) LASK (Austurríki) AEK Aþena (Grikkland) Slovan Bratislava (Slóvakía)
Leikdagar í Meistaradeild Evrópu: 1. leikdagur: 8.–10. september 2. leikdagur: 13.-14. október 3. leikdagur: 20.-21. október 4. leikdagur: 3.-4. nóvember 5. leikdagur: 24.-25. nóvember 6. leikdagur: 8.-9. desember 7. leikdagur: 19.-20. janúar 8. leikdagur: 27. janúar
Styrkleikaflokkur 1 Paris Saint-Germain (Frakkland) Bayern München (Þýskaland) Real Madrid (Spánn) Liverpool (England) Inter Milan (Ítalía) Manchester City (England) Arsenal (England) Barcelona (Spánn) Atlético Madrid (Spánn) Styrkleikaflokkur 2 Borussia Dortmund (Þýskaland) Roma (Ítalía) Sporting CP (Portúgal) Aston Villa (England) Porto (Portúgal) Manchester United (England) Club Brugge (Belgía) Real Betis (Spánn) PSV Eindhoven (Holland) Styrkleikaflokkur 3 Feyenoord (Holland) Lille (Frakkland) Bodø/Glimt (Noregur) Napoli (Ítalía) RB Leipzig (Þýskaland) Villarreal (Spánn) Fenerbahçe (Tyrkland) Shakhtar Donetsk (Úkraína) Galatasaray (Tyrkland) Styrkleikaflokkur 4 Como (Ítalía) Lens (Frakkland) Stuttgart (Þýskaland) Slavia Prag (Tékkland) Viking (Noregur) Sabah (Aserbaídsjan) LASK (Austurríki) AEK Aþena (Grikkland) Slovan Bratislava (Slóvakía)
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Real Madrid CF FC Barcelona Arsenal FC Aston Villa FC Liverpool FC Manchester City Manchester United Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Hagræddi sannleikanum um heilsu Mortensen fyrir leik“ Sport Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira