Ætlar ekki að láta kúga sig Telma Tómasson skrifar 27. ágúst 2026 12:42 Sema Erla þarf að standa fyrir máli sínu við aðalmeðferðina í október. Vísir/Vilhelm Baráttukonan Sema Erla Serdaroglu hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Hún neitar sök, segir málið skrípaleik og ætlar ekki að láta kúga sig.
Þingfesting í málinu fór fram í gær en ákæra lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu snýr að því að Sema Erla, sem skráður ábyrgðarmaður félagsins Solaris-hjálparsamtök fyrir hælisleitendur, hafi ekki tilkynnt söfnun á vegum samtakanna árið 2024 til sýslumanns áður en hún hófst og er vísað í tilgreinda lagasetningu þar um. Fellt niður tvisvar Sema Erla segir að Einar S. Hálfdánarson, hæstaréttarlögmaður, hafi lagt fram kæru sama ár og söfnunin fór fram og á tveimur og hálfu ári hafi lögreglan fellt niður málið tvisvar, hann kært niðurstöðuna og ríkissaksóknari síðan gert lögreglunni að rannsaka málið á nýjan leik. Allan þann tíma hafi hún Erla verið með réttarstöðu sakbornings. „Þetta er skrípaleikur sem hefur núna staðið yfir í tvö og hálft ár og alveg með ólíkindum að yfirvaldið á Íslandi sé að taka þátt í svona pólitískum ofsóknum gegn almenningi,“ segir Sema Erla. Hún mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þar sem ákæran var tekin fyrir. „Ég mætti bara þarna og neitaði sök, enda læt ég ekki kúga mig til svona hlýðni.“ Hafi skilað öllum gögnum Sema Erla fullyrðir að öllum gögnum vegna söfnunarinnar hafi verið skilað til réttra aðila, en Solaris ráðstafaði söfnunarfénu, alls um 90 milljónum króna, til aðstoðar flóttafólki frá Palestínu. „Þeir peningar fóru að mestum hluta nákvæmlega í það verkefni, enda voru um 200 manns, nánast allt börn og konur, sem komu þarna út. Hins vegar lokuðu þeir síðan landamærunum milli Egyptalands og Palestínu haustið 2024 og þá sáum við fram á að þetta gæti ekki staðið lengur. Þar af leiðandi skiluðum við öllum gögnum sem á að skila inn til sýslumanns, þar á meðal reikningum söfnunarinnar yfirförnum af löggiltum endurskoðanda, eins og lögin kveða á um, og fengum síðan stuttu seinna samþykki sýslumannsins á Suðurlandi fyrir því að ráðstafa því sem eftir var af söfnunarfénu til barnahjálparinnar á Gasa,“ segir baráttukonan Sema Erla Serdaroglu. Aðalmeðferð í málinu fer fram í lok október.
Dómsmál Félagasamtök Lögreglumál Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Baráttukonan Sema Erla Serdaroglu hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Hún mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þar sem ákæran var tekin fyrir, sem snýr að landssöfnun Solaris samtakanna fyrir Palestínu árið 2024. Solaris hélt utan um fjársöfnunina og ráðstafaði fénu sem safnaðist til aðstoðar flóttafólki frá Palestínu. 27. ágúst 2026 07:03 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira
Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Baráttukonan Sema Erla Serdaroglu hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Hún mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þar sem ákæran var tekin fyrir, sem snýr að landssöfnun Solaris samtakanna fyrir Palestínu árið 2024. Solaris hélt utan um fjársöfnunina og ráðstafaði fénu sem safnaðist til aðstoðar flóttafólki frá Palestínu. 27. ágúst 2026 07:03