Formúla 1

Ferrari heiðrar Schumacher á heima­velli

Aron Guðmundsson skrifar
Michael Schumacher, einn allra besti ökuþór sögunnar.
Michael Schumacher, einn allra besti ökuþór sögunnar. Vísir/getty

Formúlu 1 lið Ferrari mun heiðra goðsögnina Michael Schumacher á heimavelli á Monza eftir rúma viku þegar að keppnishelgi mótaraðarinnar fer þar fram.

Tuttugu ár verða þá liðin frá fyrsta sigri Schumachers sem liðsmaður Ferrari í Formúlu 1 og um áratugur frá hans síðasta sigri með liðinu. 

Schumacher er goðsögn í sögu mótaraðarinnar og af mörgum talinn besti ökuþór allra tíma. Hann vann sjö heimsmeistaratitla á sínum ferli og skaraði fram úr sem liðsmaður Ferrari á árunum 1996 til 2006. 

Hörmulegt skíðaslys árið 2013 þar sem að Schumacher hlaut þungt höfuðhögg, eftir að Formúlu 1 ferlinum lauk, hefur hins vegar orðið til þess að lítið er vitað um líðan hans. 

Fjölskylda Schumachers hefur haldið spilunum þétt að sér í þeim efnum, alveg eins og heimsmeistarinn margfaldi vildi gera með tilliti til síns einkalífs á meðan á ökuþórsferlinum stóð. 

Í hugum og hjörtum stuðningsmanna Ferrari er Schumacher sá besti frá upphafi og Ferrari mun heiðra hann og hans afrek með margvíslegum hætti á Monza eftir viku. 

Til að mynda mun keppnisbíll liðsins skarta sérstöku útliti til heiðurs Schumacher og þá mun útlitið á keppnisbúningum liðsins draga innblástur sinn í tíma Schumachers í Formúlu 1.

Þá ríkir mikil spenna fyrir keppninni sjálfri þar sem að Ferrari dregur alltaf marga áhorfendur að. Nú er hins vegar staðan einnig þannig að Ítalinn Kimi Antonelli, sem er ökuþór Mercedes, leiðir stigakeppni ökuþóra og gæti bætt við sigri á tímabilinu í sínu heimalandi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×