Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar 28. ágúst 2026 15:41 Það er merkilegt hvað Evrópusambandsaðild á að breyta litlu á Íslandi samkvæmt þeim sem vilja kíkja í pakkann. Við eigum áfram að ráða yfir fiskimiðunum, eigum áfram að ákveða hverjir veiða fiskinn. Strandveiðarnar verða áfram stundaðar af íslenskum sjómönnum og spænski sjómaðurinn heldur sig við sólina og sardínurnar suður við Galisíu. Þetta væri þægilegt ef regluverk Evrópusambandsins væri með þeim hætti. Það er það ekki. Meginregla sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu ESB er skýr: fiskiskip sambandsins skulu hafa jafnan aðgang að hafsvæðum og auðlindum sambandsins. Síðan kemur undanþágan. Innan 12 sjómílna mega aðildarríkin, samkvæmt núgildandi tímabundnu fyrirkomulagi, takmarka aðgang við skip sem hafa stundað veiðar á viðkomandi svæði frá höfnum á nærliggjandi strönd. Sú undanþága gildir nú til ársloka 2032. Þetta er mikilvægt orðalag. Tólf mílna reglan er ekki grundvallarreglan. Hún er undanþágan. Og undanþágan hefur gildistíma. Þá komum við að íslensku strandveiðunum. Strandveiðikerfið er ekki kerfi þar sem Jóni á Patreksfirði er úthlutað ákveðnum tonnafjölda og Pedro í Vigo (hinn spænski) getur þess vegna ekki fengið þau tonn. Kerfið er opið. Uppfyllir þú skilyrðin, ert með bát og tilskilin leyfi, geturðu tekið þátt á meðan strandveiðar eru opnar. Þar liggur stóra spurningin. Ef Ísland verður aðili að Evrópusambandinu gætu strandveiðisjómenn allra sambandsríkjanna komið hingað, stofnað útgerð, skráð skip með þeim hætti sem ESB-réttur heimilar og þeir sem uppfylla öll almenn skilyrði strandveiðikerfisins geta hafið veiðar í okkar landhelgi. Og þá yrði samkeppnin um tonnin öllu erfiðari en hún er í dag. Það yrði enginn lagalegur grundvöllur til þess að meina spænska sjómanninum aðgangi að strandveiði við Ísland, að uppfylltum skilyrðum – Ísland væri orðinn hluti af ESB og þar gilda reglur sem ganga jafnt yfir alla. Og áður en einhver segir, við myndum bara semja okkur frá þessu, þá er svarið við því nei, það er einfaldlega ekki hægt. En við erum ekki orðinn hluti af ESB og við getum enn komið í veg fyrir það. Í dag þurfum við ekki að velta þessu fyrir okkur eða semja um svona hluti. Í dag ákveðum við sjálf hver fær að veiða á íslenskum fiskimiðum. Takið líka eftir því að enginn aðildarsinna hefur þorað að segja að strandveiðar yrðu fyrir íslenska sjómenn eingöngu, aðrir íbúar sambandsins fengju ekki að veiða hér að uppfylltum skilyrðum. Það er ástæða fyrir því. Segjum Nei á laugardaginn, fyrir strandveiðarnar, segjum já við Íslandi. Áfram Ísland! Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergþór Ólason Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar