„Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Smári Jökull Jónsson skrifar 30. ágúst 2026 19:37 Stefan Ljubicic skoraði gott mark í kvöld en sagðist orðlaus eftir frammistöðu Keflvíkinga í seinni hálfleik. Vísir/Viktor Freyr Stefan Ljubicic skoraði gott mark fyrir Keflavík gegn FH í Bestu deildinni í kvöld en sagðist orðlaus yfir frammistöðu síns liðs í síðari hálfleik.
Stefán Ljubicic skoraði sitt tíunda mark í Bestu deildinni á tímabilinu gegn FH í dag en hann átti erfitt með að útskýra frammistöðu Keflvíkinga í seinni hálfleik í dag. „Við vorum orkulausir, ég veit ekki alveg og ég er eiginlega orðlaus. Þetta er ekki líkt okkur og okkar leikstíl og það voru of margir að slaka á. Þetta má ekki gerast aftur,“ sagði Stefán í viðtali eftir leik. Mark Stefans var gott, frábært skot fyrir utan teig sem söng í horninu. Hann sagði að gestirnir hefðu þó getað gert betur í fyrri hálfleiknum líka þó frammistaðan þar hafi verið betri en í þeim seinni. „Allt í lagi en persónulega ekki sáttur. Fullt af seinni boltum sem við erum ekki mættir í, fullt af feilsendingum og fullt af ákvarðanatökum. Við erum að fá fullt af stöðum og kannski of margir eigingjarnir og ekki að spila fyrir liðið. Heilt yfir var framistaðan okkar ekki við hæfi og við þurfum að laga það fyrir næsta leik,“ en Keflavík gæti verið á leið í úrslitaleik gegn Val í næstu umferð um sæti í efri hluta Bestu deildarinnar, nái Valsmenn í góð úrslit í kvöld gegn ÍA. Verkefni Stefans í kvöld var ekki auðvelt því miðverðir FH þeir Ísak Óli Ólafsson og Oliver Stefánsson eru sterkir og áttu báðir fínan leik í kvöld. „Ég er ekkert að hugsa um það, ég veit hvað ég get og veit að það á enginn séns í mig í þessari deild þegar ég er að skila boltanum,“ sagði Stefan að lokum.
Besta deild karla Keflavík ÍF FH Mest lesið „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti Celtic og Rangers áfrýja Sport Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö „Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Sjá meira