Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 13:03 Listakonan Þórdís Erla Zoëga stóð fyrir farsælli sýningaropnun í Íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Astrid Ubagh Fullt var út úr dyrum þegar listakonan Þórdís Erla Zoëga opnaði sýninguna Samrými í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn 27. ágúst síðastliðinn. Sýningin fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra.
Þórdís, sem er fædd árið 1988, hefur sýnt verk sín víða, meðal annars í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Helsinki, Amsterdam, Berlín og Basel, auk þess að taka þátt í sýningum í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og á Listahátíð í Reykjavík. Hún var úti í tilefni af þátttöku sinni á Norrænu listamessunni Chart Art Fair, þar sem hún sýndi verk í samstarfi við Berg Contemporary í Reykjavík. Þórdís starfar einnig með danska galleríinu SPECTA í Kaupmannahöfn og mun halda einkasýningu þar í nóvember næstkomandi. Sýningin í sendiráðinu stendur til 11. nóvember næstkomandi. Í fréttatilkynningu segir: „Sýningin Samrými/Common Space/Fællesrum fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra. Manneskjan leitast við að eiga sitt eigið svæði en sækir á sama tíma í að tilheyra stærra samfélagi. Samfélagið getur verið líkamlegt innan viss landsvæðis en einnig ósýnilegt, stafrænt rými sem við deilum í skýjunum. Einkarými er þannig orðið sífellt huglægara hugtak; þótt við leitumst við að eignast okkar eigin blett, viljum við hafa frelsið til að ferðast um sameiginleg og ósýnileg rými. Í sendiráðinu fá þessar spurningar sérstaka merkingu þar sem þjóðir fá sinn eigin landskika til umráða innan annars lands þar sem líkamlega og huglæga rýmið skarast.“ Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: Viktoría Hlín Ágústsdóttir, Elfur Örlygsdóttir og Eir Örlygsdóttir í góðum fíling.Astrid Ubagh Verk Þórdísar eru bæði speglandi og gegnsæ.Astrid Ubagh Stefanía K. Bjarnadóttir frá sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn og Kristjana Rós Oddsdóttir Guðjohnsen frá Íslandsstofu.Astrid Ubagh Fólk lyfti glösum fyrir listinni. Í sófanum sitja Sandra Gunnarsdóttir, Amna Hasecic og Magnús Jóhann Ragnarsson.Astrid Ubagh Listin sameinar fólk! Astrid Ubagh Fólk mætti í sínu fínasta pússi.Astrid Ubagh Cecilie C. Ragnheiðardóttir Gaihede forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar og Katrín Elvarsdóttir.Astrid Ubagh Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Þórdís Erla Zoega listakona og Cecilie C. Ragnheiðardóttir Gaihede forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar.Astrid Ubagh Fólk var í góðum gír í dönsku sólinni.Astrid Ubagh Gleðin var í loftinu.Astrid Ubagh Knús og kram.Astrid Ubagh Halla Helgadóttir forstöðumaður Hönnunarmiðstöðvar, Loji Höskuldsson myndlistarmaður, Halla Benediktsdóttir forstöðumaður Jónshúss og Stefanía K. Bjarnadóttir hjá Íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn.Astrid Ubagh Björk Hrafnsdóttir sýningarstjóri og Magnús Jóhann píanóleikari á spjalli hér til hægri.Astrid Ubagh Pétur Geir myndlistarmaður spjallaði við Ásdísi Björgu.Astrid Ubagh Fjöldi fólks kom saman á sýningu Þórdísar.Astrid Ubagh Aldís Guðmundsdóttir, ungur listunnandi og Ásdís Björg Ágústsdóttir.Astrid Ubagh Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari mætti með dóttur sinni Hugrúnu Eglu Einarsdóttur. Astrid Ubagh Stefanía K. Bjarnadóttir ávarpaði gesti. Astrid Ubagh Í verkaröðinni Interspace vinnur Þórdís Erla Zoëga með geometríska formgerð fána Norðurlandanna. Litir og hlutföll fánanna eru brotin niður og endursköpuð í gegnsæjum akrýlverkum með litbreytifilmu þar sem til verða svokölluð ómöguleg rými.Astrid Ubagh Una Jóna Sigurðardóttir og séra Guðni Már sendiráðsprestur í Danmörku slá á létta strengi. Astrid Ubagh Gestir tylltu sér út og nutu sólarinnar.Astrid Ubagh Verk Þórdísar speglast einstaklega skemmtilega.Astrid Ubagh Listrænt spjall.Astrid Ubagh Þórdís Zoega, Björk Hrafnsdóttir, Iona Sjöfn Huntington-Williams og Helga Páley.Astrid Ubagh Stefanía K. Bjarnadóttir og Katrín Katla Sverrisdóttir. Astrid Ubagh Björk Hrafnsdóttir, Pétur Geir og Magnús Jóhann.Astrid Ubagh Andlit mætast á einstakan hátt í gegnum verk Þórdísar. Astrid Ubagh Þórdís Erla og Ingibjörg Jónsdòttir, gallerís-stjóri Berg Contemporary. Astrid Ubagh
Danmörk Myndlist Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira