Fangar eigin hugsana, tilfinninga og skoðana Jón Pétur Zimsen skrifar 3. september 2026 07:03 Ef þú býrð ekki yfir ríkum orðaforða og grunnfærni í lesskilningi áttu erfiðara með að orða hugsanir þínar, tilfinningar og skoðanir. Tækifærum þínum fækkar og þú verður háðari öðrum við að afla upplýsinga, túlka þær og koma eigin sjónarmiðum á framfæri. Við þennan vanda glíma tugþúsundir barna, ungmenna og fullorðinna hér á landi. Síðustu ár hafa um 2.000 ungmenni yfirgefið grunnskólann án grunnfærni í lesskilningi. Það eru um fjögur af hverjum tíu börnum. Hnignunin hefur verið gríðarleg. Frá því PISA-mælingar hófust hefur Ísland fallið meira í lesskilningi en nokkurt annað OECD-ríki. Sé þróunin umreiknuð í námsár jafngildir tapið um þremur og hálfu skólaári af tíu frá aldamótum. Þetta hefur bara fengið að gerast með tilheyrandi afleiðingum. OECD tekur fram að veruleg hætta sé á að framleiðni hérlendis verði að minnsta kosti 5% minni vegna þessa. Það jafngildir um 200–300 milljörðum króna á ári. Þetta þarf ekki að vera svona. Það hafa góðir íslenskir kennarar og skólar sýnt. Samt hefur meðvirknin með kerfinu verið alltof mikil og of fáir valdamenn látið sig þróunina nægilega varða. Það er óþolandi að fjöregg þjóðarinnar, börnin okkar og barnabörn, fái ekki meiri athygli og virðingu. Ef staðan væri sambærileg í einhverjum öðrum málaflokki væri neyðarástand. Það væru daglegar fréttir, kröfur um svör og aðhald. Í menntakerfinu virðumst við hins vegar hafa vanist ástandinu. Í september koma nýjustu niðurstöður PISA (2025). Ég óttast að þær verði vondar. Það hefur einfaldlega of lítið verið gert til að ætla að sá viðsnúningur sem við þurfum muni sjást þar. Foreldrar, afar og ömmur eiga að geta treyst því að skólinn búi börnin undir þátttöku í lýðræðissamfélagi, eins og lög kveða á um. En hvernig á barn sem á erfitt með að lesa, skilja upplýsingar og koma eigin sjónarmiðum á framfæri að standa jafnfætis öðrum í slíku samfélagi? Við myndum aldrei sætta okkur við að fjórir af hverjum tíu næðu ekki þeirri grunnfærni sem kerfi væri ætlað að tryggja þeim. Af hverju höfum við þá sætt okkur við það þegar börnin okkar eiga í hlut? Lesskilningur snýst um miklu meira en niðurstöður á prófi. Barn sem lærir að lesa vel fær fleiri orð til að hugsa með, meiri getu til að tjá eigin tilfinningar og skoðanir og betri forsendur til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf. Það er frelsi. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Ef þú býrð ekki yfir ríkum orðaforða og grunnfærni í lesskilningi áttu erfiðara með að orða hugsanir þínar, tilfinningar og skoðanir. Tækifærum þínum fækkar og þú verður háðari öðrum við að afla upplýsinga, túlka þær og koma eigin sjónarmiðum á framfæri. Við þennan vanda glíma tugþúsundir barna, ungmenna og fullorðinna hér á landi. Síðustu ár hafa um 2.000 ungmenni yfirgefið grunnskólann án grunnfærni í lesskilningi. Það eru um fjögur af hverjum tíu börnum. Hnignunin hefur verið gríðarleg. Frá því PISA-mælingar hófust hefur Ísland fallið meira í lesskilningi en nokkurt annað OECD-ríki. Sé þróunin umreiknuð í námsár jafngildir tapið um þremur og hálfu skólaári af tíu frá aldamótum. Þetta hefur bara fengið að gerast með tilheyrandi afleiðingum. OECD tekur fram að veruleg hætta sé á að framleiðni hérlendis verði að minnsta kosti 5% minni vegna þessa. Það jafngildir um 200–300 milljörðum króna á ári. Þetta þarf ekki að vera svona. Það hafa góðir íslenskir kennarar og skólar sýnt. Samt hefur meðvirknin með kerfinu verið alltof mikil og of fáir valdamenn látið sig þróunina nægilega varða. Það er óþolandi að fjöregg þjóðarinnar, börnin okkar og barnabörn, fái ekki meiri athygli og virðingu. Ef staðan væri sambærileg í einhverjum öðrum málaflokki væri neyðarástand. Það væru daglegar fréttir, kröfur um svör og aðhald. Í menntakerfinu virðumst við hins vegar hafa vanist ástandinu. Í september koma nýjustu niðurstöður PISA (2025). Ég óttast að þær verði vondar. Það hefur einfaldlega of lítið verið gert til að ætla að sá viðsnúningur sem við þurfum muni sjást þar. Foreldrar, afar og ömmur eiga að geta treyst því að skólinn búi börnin undir þátttöku í lýðræðissamfélagi, eins og lög kveða á um. En hvernig á barn sem á erfitt með að lesa, skilja upplýsingar og koma eigin sjónarmiðum á framfæri að standa jafnfætis öðrum í slíku samfélagi? Við myndum aldrei sætta okkur við að fjórir af hverjum tíu næðu ekki þeirri grunnfærni sem kerfi væri ætlað að tryggja þeim. Af hverju höfum við þá sætt okkur við það þegar börnin okkar eiga í hlut? Lesskilningur snýst um miklu meira en niðurstöður á prófi. Barn sem lærir að lesa vel fær fleiri orð til að hugsa með, meiri getu til að tjá eigin tilfinningar og skoðanir og betri forsendur til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf. Það er frelsi. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri.
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar