Íslenski boltinn

Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endur­sýna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sveinn Gísli Þorkelsson verður frá keppni á næstunni eftir að hafa handleggsbrotnað í kvöld.
Sveinn Gísli Þorkelsson verður frá keppni á næstunni eftir að hafa handleggsbrotnað í kvöld. vísir/Hulda Margrét

Sveinn Gísli Þorkelsson, leikmaður Víkinga, handleggsbrotnaði skelfilega í leik KR og Víkinga í Vesturbænum í gærkvöldi.

Um var að ræða mjög ljótt opið beinbrot og þótti starfsmönnum Sýnar Sport ekki smekklegt að endursýna. Um var að ræða opið beinbrot og fylgdi því töluvert blóð.

Fréttastofa hefur rætt við Svein í morgun og er hann á leiðinni í aðgerð. Tímabilið er að öllum líkindum búið hjá honum en hann bar sig merkilega vel þegar hann gekk sjálfur af velli í gærkvöldi. 

Stórleikurinn fór 1-1 í 21. umferð Bestu-deildar karla í gærkvöldi og héldu Víkingar í átta stiga forskot á toppnum í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×