Innherji

Gæti gefið eftir með haustinu en munum ef­laust á­fram búa við sterka krónu

Hörður Ægisson skrifar
Hátt nafn- og raungengi krónunnar er stutt af nánast fordæmalausum verðhækkunum á íslenskum sjávarafurðum á erlendum mörkuðum á undanförnum tveimur árum.
Hátt nafn- og raungengi krónunnar er stutt af nánast fordæmalausum verðhækkunum á íslenskum sjávarafurðum á erlendum mörkuðum á undanförnum tveimur árum. Vísir/Vilhelm

Góð staða helstu útflutningsgreina, sem birtist meðal annars í hækkandi afurðaverði í sjávarútvegi og „mjög sterku“ ferðamannasumri, samhliða háu vaxtastigi hefur ýtt undir gengishækkun krónunnar og er raungengið núna í hæstu hæðum. Sérfræðingur á gjaldeyrismarkaði segir að á meðan sú staða helst óbreyttu sé fátt sem bendi til þess að gengið muni hreyfast mikið og því áfram útlit fyrir sterka krónu.


Tengdar fréttir

Raun­gengið áfram í hæstu hæðum nema það komi til áföll í út­flutnings­greinum

Afar hátt afurðaverð í sjávarútvegi og verðhækkanir á áli samhliða því að vægi gagnaveranna í útflutningstekjum þjóðarbúsins fer vaxandi mun sennilega valda því að hliðra raungenginu til lengri tíma, að sögn greinenda Acro, en starfsemi gagnaveranna virðist ekki mjög næm fyrir háu raungengi. Skert samkeppnishæfni þjóðarbúsins vegna hás raungengis gæti því verið komin til að vera, í bili að minnsta kosti, nema það komi til áföll í útflutningsgreinum.

Krónan styrkist þrátt fyrir met­kaup líf­eyris­sjóða á gjald­eyri í júlí

Eftir að hafa haft afar hægt um sig í gjaldeyrisviðskiptum á liðnu ári hafa umsvif lífeyrissjóðanna margfaldast það sem af er þess ári. Þrátt fyrir metkaup sjóðanna í júlímánuði hélt gengi krónunnar áfram að styrkjast, en hlutdeild lífeyrissjóða í heildarviðskiptum á gjaldeyrismarkaði er lítil.

Með fleiri gjald­eyris­stoðum gæti hátt raun­gengi verið „komið til að vera“

Þrátt fyrir sögulega hátt raungengi krónunnar samhliða miklum launahækkunum ætti öflug ferðaþjónusta að geta þrifist, að mati sérfræðings á gjaldeyrismarkaði, en það kallar á aðlögunarhæfni greinarinnar og smám saman muni starfsemi með litla framlegð verða ýtt út úr landi vegna launakostnaðar. Uppgjör Icelandair á öðrum fjórðungi, sem var vel undir væntingum greinenda, litaðist meðal annars af sterku gengi krónunnar og forstjóri flugfélagsins nefndi að sagan sýndi að þessi staða væri ekki sjálfbær.

Raun­gengi krónunnar lítil­lega yfir­verðlagt að mati AGS og Seðla­bankans

Þótt raungengi krónunnar sé búið að rísa hratt að undanförnu, sem hefur þrengt nokkuð að samkeppnishæfni margra útflutningsfyrirtækja, þá er það aðeins nokkrum prósentum hærra en nemur nýlegi mati Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á jafnvægisraungenginu. Með hliðsjón af því er ekki endilega líklegt að mikil leiðrétting verði á genginu á næstunni.

Erum nánast háð því að líf­eyris­sjóðirnir fari út með um hundrað milljarða á ári

Þegar það fer að róast um hjá ferðaþjónustunni og lífeyrissjóðirnir fara á nýjan leik að bæta í gjaldeyriskaupin mun raungengi krónunnar, sem eru sögulega hátt um þessar mundir, án vafa leiðréttast en spurningin er hins vegar aðeins hversu mikið, að sögn sérfræðings á gjaldeyrismarkaði. Framan af ári hafa lífeyrissjóðirnir keypt minna af gjaldeyri en á tímum faraldursins og mögulega er gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins það sterk að við erum háð því að sjóðirnir fari út með hátt í hundrað milljarða á ári eigi koma í veg fyrir „ósjálfbært“ raungengi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×