Handbolti

„Var ekki langt frá því að tárast“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur Andrés í leik með Kristianstad.
Ólafur Andrés í leik með Kristianstad. vísir/getty

Rómantíkin varð til þess að Ólafur Andrés Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, tók skóna af hillunni. Hann fær tækifæri til þess að enda ferilinn á sínum eigin forsendum, hjá félaginu sem hann átti sínar bestu stundir hjá.

Ólafur lagði skóna á hilluna fyrr á þessu ári eftir afar krefjandi meiðslatímabil sem hélt honum frá keppni allt síðasta tímabil. Það kom því nokkuð á óvart er hann dúkkaði upp í leikmannahópi Kristianstad, gamla liði sínu þar sem að hann var margfaldur meistari á sínum tíma.

Gunnar Steinn Jónsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í handbolta og góður vinur Ólafs er kominn inn í þjálfarateymi Kristianstad og hann fékk Ólaf inn á æfingu. Þá var ekki aftur snúið.

Klippa: Ólafur kominn aftur til Kristianstad

„Það er ákveðin rómantík í þessu finnst mér. Það var leiðinlegt að síðasta árið mitt spilaði ég ekki. Meiddur og slæmur í bakinu. Því náði ég ekki að hætta á mínum forsendum. Síðan kemur inn í þetta líka að þetta er minn klúbbur. Þeir eru sænskir meistarar og í Meistaradeildinni. Svo eru Íslendingar í liðinu. Allur pakkinn var mjög sjarmerandi,“ sagði Ólafur í samtali við íþróttadeild frá Kristianstad Arena.

Ólafur er 36 ára gamall og skartar yfir fimmtán ára ferli í atvinnumennsku. Þaulreyndur landsliðsmaður og leiðtogi.

„Hlutverkið mitt er tölvuvert frábrugðið því sem ég er vanur. Ég er að koma inn með reynslu og mjög mikið annað en handbolta þó svo það sé stór hluti. Stærsta hlutverkið verður varnarleikurinn og koma inn á æfingar með ákveðna reynslu og hugmyndafræði sem klúbburinn hefur verið að byggja upp síðustu ár. Miðla því áfram.“

Og stuðningsmenn Kristianstad hafa ekki gleymt honum. Móttökurnar, þegar Ólafur klæddist treyju félagsins á nýjan leik, voru magnaðar.

„Þetta var ótrúleg upplifun og ég fékk gæsahúð. Ég var ekki langt frá því að tárast er ég var kynntur inn. Það hlýjaði manni um hjartað og mér þótti vænt um þetta. Það er yndislegt að finna þennan kærleik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×