Handbolti

Tveir ný­liðar í lands­liðs­hópnum

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik Íslenska landsliðsins
Frá leik Íslenska landsliðsins Vísir/Hulda Margrét

Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðs kvenna hefur valið 22 leikmenn sem koma saman til æfinga mánudaginn 21. september. Æfingar munu standa út þá viku.

Um loka hitting liðsins hérlendis fyrir Evrópumótið er að ræða, en í millitíðinni kemur liðið saman í október þar sem það mætir Póllandi í vináttulandsleikjum ytra.

Tveir nýliðar eru í landsliðshópnum, þær Embla Steindórsdóttir, leikmaður Hauka og Emelía Óska Aðalsteinsdóttir, leikmaður Selfoss.

Ísland verður í riðli með Ungverjalandi, Svartfjallalandi og Slóveníu á Evrópumótinu sem fram fer 3.-20. desember. Gestgjafar mótsins eru fimm talsins en það eru Pólland, Rúmenía, Tékkland, Slóvakía og Tyrkland

Hópinn er eftirfarandi

Markmenn

Hafdís Renötudóttir, Valur (79/5)

Sara Sif Helgadóttir, Haukar (/)

Ethel Gyða Bjarnasen, Fram (1/0)

Aðrir leikmenn

Alexandra Líf Arnarsdóttir, Haukar (7/3)

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Thuringer HC (16/11)

Andrea Jacobsen, ÍBV (69/117)

Dana Björg Guðmundsdóttir, Larvik (21/50)

Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg Lippe (74/103)

Elín Klara Þorkelsdóttir, Savehof (36/138)

Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg Lippe (41/84)

Embla Steindórsdóttir, Haukar (0/0)

Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, Selfoss (0/0)

Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (23/35)

Katrín Tinna Jensdóttir, HH Elite (36/40)

Lilja Ágústsdóttir, Sachsen Zwickau (27/19)

Lovísa Thompson, Benfica (40/74)

Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (10/1)

Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (13/12)

Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (48/200)

Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (6/12)

Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (6/2)

Thea Imani Sturludóttir, SCM Craiova (98/224)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×