Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Kjartan Kjartansson skrifar 9. september 2026 13:55 Friedrich Merz, kanslari, klórar sér í kollinum undir ræðu Alice Weidel, leiðtoga AfD, í þýska þinginu í dag. Weidel sagði Merz ekki hafa skilið skilaboðin sem kjósendur í Saxlandi-Anholt sendu honum um helgina. Vísir/EPA Kanslari Þýskalands segir að hugmyndir Valkosts fyrir Þýskaland um fjöldabrottvísanir fólks af erlendum uppruna gangi í raun út á þjóðernishreinsanir. Slíkar brottvísanir rústuðu jafnframt efnahagi landsins.
Leiðtogar Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) hafa á undanförnum misserum tekið heilshugar undir ákall um svokallaða „endurflutninga“ (þ. remigration) sem þeir reyndu upphaflega að fjarlægja sig frá vegna tengsla við öfgahægrihreyfingar. Endurflutningar fela í sér fjöldabrottvísanir á innflytjendum, jafnvel þá þeim sem hafa þýskan ríkisborgararétt ef þeir eru ekki taldir hafa aðlagast þýsku samfélaginu nægilega vel að mati þeirra sem aðhyllast stefnuna. Í kjölfar sögulegs sigurs AfD í sambandslandskosningum í Saxlandi-Anholt um helgina, fyrsta sigurs jaðarhægrimanna í Þýskalandi frá lokum nasismans, varaði Friedrich Merz, kanslari, við afleiðingum þess ef flokkurinn hrinti hugmyndum sínum um endurflutninga í framkvæmd. „„Endurflutningar“ eru ekkert annað en samheiti fyrir þjóðernishreinsanir á grundvelli uppruna og húðlitar,“ sagði Merz. Ef vísa ætti fólki ef erlendum uppruna úr landi í stórum hópum yrði skortur á faglærðu starfsfólki og ekki yrði lengur hægt að reka sjúkrahús eða veitingastaði. „Það væri afleiðing innflytjendastefnunnar ykkar,“ sagði Merz í þýska þinginu í dag. Leiðtoginn bendlaður við nýnasista „Endurflutningar“ var hluti af stefnuskrá AfD í Saxlandi-Anholt, að sögn evrópska blaðsins Politico. Ulrich Siegmund, leiðtogi flokksins þar, var einn fulltrúa flokksins sem sátu umdeildan fund með þekktum nýnasista þegar hann ræddi hugmyndir sínar um brottvísanir útlendinga á þessum forsendum. Uppljóstranir um fundinn leiddu til mótmæla gegn AfD í fjölda þýskra borga. Nokkrir af helstu ráðgjöfum Siegmund störfuðu áður með bönnuðum nýnasistasamtökum á sínum yngri árum. AfD boðaði einnig aðskilnað skólabarna eftir uppruna í kosningabaráttu sinni í sambandslandinu sem var áður hluti af Þýska alþýðulýðveldinu. Þannig vildi flokkurinn setja börn hælisleitenda og flóttamanna í sérstaka skóla þar sem þeim yrði kennt eftir námsskrá upprunalanda þeirra. Markmiðið væri annars vegar að senda börnunum þau skilaboð að þau yrðu ekki lengi í Þýskalandi og hins vegar að leysa þýsk skólabörn undan þeirri áþján að þurfa að deila skólastofum með börnum af öðrum uppruna. Ungliðahreyfing Miðflokksins á Íslandi hefur daðrað við endurflutninga undanfarið. Varaþingmaður flokksins birti þannig mynd af erlendum brotamönnum undir slagorðinu „fjöldabrottvísun/remigration“ í fyrra. Á myndinni var þó að minnsta kosti einn íslenskur ríkisborgari. Hætti við símtal við Trump Donald Trump Bandaríkjaforseti óskaði AfD til hamingju með sigurinn í Saxlandi-Anholt í samfélagsmiðlafærslu í gær. Afar óvenjulegt er að bandarískur forseti úttali sig um úrslit í sambandslandskosningum í Þýskalandi. „Þau fengu loksins nóg af algerlega hræðlegum Innflytjendalögum og reglugerðum sem hafa skaðað Þýskaland svo illa. MGGA!!!“ skrifaði Trump og yfirfærði slagorð sitt um að gera Bandaríkin frábær aftur á Þýskaland. Merz aflýsti skömmu eftir færsluna fyrirhuguðu símtali við Trump, að sögn AFP-fréttaveitunnar. Talsmaður hans gaf ekki upp ástæðu fyrir því. Ríkisstjórn Trump hefur leynt og ljóst unnið með evrópskum fjarhægriflokkum eins og AfD. Athygli vakti þannig þegar J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, fundaði sérstaklega með fulltrúa AfD í kringum árlega öryggisráðstefnu í München í fyrra og gagnrýndi þýska stjórnmálaflokka fyrir að neita að vinna með flokknum.
Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Innflytjendamál Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sjá meira