Handbolti

Ís­lendingaliðin ekki í vand­ræðum í Meistara­deildinni

Aron Guðmundsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason voru báðir í eldlínunni með sínum liðum í kvöld
Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason voru báðir í eldlínunni með sínum liðum í kvöld Vísir/Samsett

Íslendingalið Magdeburgar og Barcelona sóttu bæði örugga sigra í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld. Ómar Ingi Magnússon fór á kostum með Magdeburg.

Magdeburg tók á móti norska liðinu Kolstad og skemmst er frá því að segja að sigur þýsku meistaranna var aldrei í hættu. 

Þýska liðið leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 19-12 og bætti svo jafnt og þétt við forystu sína eftir því sem leið á seinni hálfleikinn. 

Lokatölur urðu 37-22, Magdeburg í vil. Ómar Ingi Magnússon átti frábæran leik í liði Magdeburgar og skoraði sjö mörk, þar að auki átti hann fimm stoðsendingar og tvo stolna bolta. Elvar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk og Gísli Þorgeir einnig, auk þess sem hann átti þrjár stoðsendingar.

Þá tók spænska stórliðið Barcelona á móti SAH frá Danmörku í Íslendingaslag. 

Líkt og var raunin hjá Magdeburg var sigur Börsunga aldrei í hættu í kvöld. 

Börsungar leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 18-13 og þeir héldu svo áfram að herða tak sitt á leiknum í seinni hálfleik. 

Svo fór að Börsungar fóru með 11 marka sigur af hólmi, 39-28. Janus Daði Smárason skoraði eitt mark fyrir Barcelona í leiknum og Viktor Gísli Hallgrímsson varði eitt skot í marki liðsins á þeim sjö mínútum sem hann fékk að verja markið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×