Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Guðmundsson skrifar 10. september 2026 16:31 Dagbjartur Sigurbrandsson, Íslandsmeistari síðustu tveggja ára. Vísir/Bjarni Ríkjandi Íslandsmeistarinn í golfi, Dagbjartur Sigurbrandsson, er í afar góðum málum fyrir lokahring úrtökumóts á fyrsta stigi fyrir Evrópumótaröðina, DP World Tour.
Dagbjartur hefur verið spila frábært golf og sýnt mikinn stöðugleika á mótinu sem fer fram í Þýskalandi þessa dagana. Eftir þrjá hringi af fjórum er hann jafn í tíunda sæti mótsins á sex höggum undir pari og lék þriðja hring dagsins á tveimur höggum undir pari. Alla þrjá hringina hefur hann farið á undir pari vallarins og er af þeim átta Íslendingum sem taka þátt á mótinu í bestu stöðunni. Um úrtökumóti á fyrsta stigi fyrir Evrópumótaröðina er að ræða. Mótið er eitt af tíu mótum á fyrsta stigi úrtökumótanna en kylfingar þurfa að komast í gegnum þrjú stig til þess að fá þátttökurétt á DP World Tour og óhætt að segja að þræða þurfi nálaraugað til að komast alla leið. Alls hófu 82 kylfingar leik á mótinu í Þýskalandi og má ætla að rúmlega fimmtungur þeirra fari áfram á annað stig. Næstur í röðum Íslendinga á eftir Dagbjarti er Ragnar Garðarsson á alls þremur höggum undir pari, jafn í fimmtánda sæti mótsins. Sigurður Arnar Garðarsson fylgir honum fast á hæla á tveimur höggum undir pari, jafn í átjánda sæti og Aron Snær Júlíusson er svo á einu höggi undir pari, jafn í 21. sæti. Aðrir íslenskir kylfingar eru töluvert á eftir hinum.
Golf Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira