Bakverðir til bjargar Valur Páll Eiríksson skrifar 10. september 2026 18:37 Ekkert fékk Fenerbahce og Roma aðskilin í dag. EPA/STR Jafnt var í tveimur fyrir leikjum dagsins í Meistaradeild Evrópu í fótbolta sem fram fóru í Istanbúl og Eindhoven. Bakverðir tryggðu liðum sínum stig í leikjunum tveimur.
Rándýrt lið Fenebahce tók á móti Roma í Istanbúl en Rómverjar hafa farið frábærlega af stað heima fyrir og sitja á toppi ítölsku deildarinnar með fullt hús eftir þrjá leiki. Gestirnir voru fyrri til í leiknum er Bryan Cristante kom Roma yfir seint í fyrri hálfleik eftir ljómandi fínan undirbúning Hollendingsins Donyell Malen. Roma leiddi 1-0 í hálfleik en Fenerbahce hafði þó verið hættulegri aðilinn. Tyrkirnir hertu tökin eftir hlé og tókst að jafna er Mason Greenwood vann bakvörðinn Archie Brown í teignum og hann vippaði boltanum laglega yfir markvörð Roma. Fenerbahce sótti töluvert á Rómverjana eftir jöfnunarmarkið en tókst ekki að finna sigurmark. Leiknum lauk því með 1-1 jafntefli. Sömu sögu er að segja frá Eindhoven þar sem PSV og Shakhtar Donetsk skildu jöfn 1-1. Sá leikur var heldur lokaður en Venesúelamaðurinn Gleiker Mendoza kom úkraínska liðinu yfir í blálok fyrri hálfleiks. Bakvörðurinn Sergino Dest jafnaði fyrir PSV strax í byrjun þess síðari og þar við sat. Liðin fjögur því öll með eitt stig eftir fyrsta leik vetrarins í keppninni. Fyrsta umferðin klárast í kvöld með fjórum leikjum sem allir hefjast klukkan 19:00 og verður fylgt eftir samtímis í Meistaradeildarmessunni á Sýn Sport. Meistaradeildin í kvöld 18:30 Meistaradeildarmessan (Sýn Sport) 18:50 Bayern Munchen – Bodö/Glimt (Sýn Sport 2) 18:50 Manchester United – Sabah (Sýn Sport Viaplay) 18:50 Como – RB Leipzig (Sýn Sport 3) 19:00 Slavia Prag - Lens 21:00 Meistaradeildarmörkin (Sýn Sport)
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tyrkneski boltinn Ítalski boltinn Hollenski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira