Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar 14. september 2026 11:02 Þegar spjallað er um kvikmyndir eða leikrit sem gerð eru eftir bókum er viðkvæðið oft að bókin hafi verið betri. Þetta er ekki rifjað upp til að kasta rýrð á leikhús eða bíó heldur til að benda á hvað bækur geta best af öllu: segja flókna sögu með öllum sínum blæbrigðum og láta nýja og óþekkta heima lifna í huga þess sem les. Umræða um læsi og lesskilning hefur farið hátt upp á síðkastið í kjölfar niðurstöðu alþjóðlega PISA-prófsins og það er full ástæða til að hafa miklar áhyggjur af hnignandi lesfærni þjóðarinnar. Lestur er einfaldlega undirstaða allrar þekkingaröflunar og þátttöku í samfélaginu og illa læs þjóð á sér ekki bjarta framtíð. En lausnin við þessu er hvorki flókin né langsótt. Lesum! Barn þarf ekki að vera margra daga gamalt til að hafa gaman af því að horfa á bók flett, heyra einfalda sögu og rýna í myndir sem gerðar eru með aldur þess í huga. Í takt við þroska barnsins mega sögurnar lengjast og myndirnar fyllast af skemmtilegum smáatriðum sem gleðja bæði barnið og þann sem les með því. Allir sem lesið hafa með börnum vita hvers lags gæðastundir það eru, hvort sem það er fyrir svefninn, á úlfatímanum ógurlega milli leikskóla og kvöldmatar eða í morgunsárið til að vakna vel inn í nýjan dag. Fátt jafnast líka á við að sjá barn sigrast á bókstafarununum og læra að lesa sjálf. En það er bara byrjunin. Til að öðlast lestrarfærni þarf að æfa lesturinn, rétt eins og allt annað sem við ætlum að verða (og vera) góð í. Fyrstu árin heldur skólinn vel utan um þessar æfingar en þær þurfa að halda áfram fram á fullorðinsár – og í raun alla ævi. Eitt af því sem hvetur til lestraræfinga er að hafa bækur sýnilegar í umhverfinu og að fullorðnir sýni með góðu fordæmi að bækur séu eftirsóknarverðar. Börn þurfa með öðrum orðum að sjá fullorðna fólkið í kringum sig grúfa sig ofan í bók og njóta hennar, og þau þurfa að geta gripið skemmtilega bók hvenær sem þeim dettur það í hug, fengið einhvern til að lesa hana fyrir sig eða sökkt sér í hana sjálf. Bókahillur eða -bunkar í sjónmáli barns halda bókinni vakandi í huga þess og fullorðinn einstaklingur með bók í hönd styrkir þá vissu sem flest börn hafa frá frumbernsku að bækur séu góð skemmtun. Þá ýtir samtal um bók þegar búið er að lesa undir þá hugmynd að bækur skipti máli, bækur geti kveikt hugmyndir, bækur geti breytt heimsmynd manns. Ég held að við höfum sem samfélag sofnað á verðinum þegar lesturinn fékk sífellt meiri samkeppni frá annarri afþreyingu og áttuðum okkur ekki á því hvað minnkandi bóklestur barna á skólaaldri hafði alvarleg áhrif. Nú vitum við hvað lestraræfingar skipta miklu máli og þá er bara að setja undir sig hausinn og snúa þróuninni við. Til þess er bókin ekki bara betri. Hún er best! Höfundur er framkvæmdastjóri Forlagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókmenntir Skóla- og menntamál PISA-könnun Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun