Greip um eistu lögreglumanns Bjarki Sigurðsson skrifar 14. september 2026 14:16 Konan greip um kynfæri lögreglumanns sem var að færa hana í fangaklefa. Vísir/Vilhelm Kona á sextugsaldri hefur verið dæmd til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni og kynferðislega áreitni. Konan greip um kynfæri lögreglumanns þegar hann var að færa hana í fangaklefa.
Konan var handtekin 9. nóvember 2023 vegna brots á lögreglusamþykkt Reykjavíkur. Hún var færð á lögreglustöðina þar sem átti að vista hana í fangageymslu. Hún var samkvæmt gögnum málsins æst og óstýrilát, baðaði út höndum, fylgdi ekki fyrirmælum og lét fúkyrðum rigna yfir lögreglumenn. Þá viðhafði hún kynferðislegt tal og framkomu í þeirra garð. Hún hafi ekki viljað fara sjálfviljug í fangaklefa og því tóku lögreglumaður og varðstjóri hana grunntökum til að koma henni inn. Hún náði að losa tak lögreglumannsins og teygði hönd sína aftur. Þá greip hún þéttingsfast um kynfæri mannsins utanklæða með þeim afleiðingum að hann hlaut eymsli í eistum. Maðurinn segir konuna hafa kreist nokkuð fast og að hann hafi verið aumur í eistunum í nokkurn tíma eftir. Man ekki en neitar samt Fyrir dómi sagðist konan lítið muna eftir atvikum málsins. Hún hefði verið ölvuð en hafnaði því að hafa gripið um kynfæri mannsins. Tveir aðrir lögreglumenn en brotaþoli gáfu skýrslu fyrir dómi. Þeir gátu báðir staðfest aðdragandann en hvorugur varð var við það að hún hafi gripið um kynfæri mannsins. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að í málinu liggi frammi myndbönd sem sýna atvikið. Í þeim má sjá konuna losa hendina og þreifa í átt að kynfærum mannsins. Það mátti þó ekki greina hvort konan hefði gripið um kynfærin eða ekki, þó að myndböndin hafi ekki útilokað það. Á einu þeirra má sjá lögreglumanninn víkja sér undan konunni með því að reka rassinn aftur, sem stemmt getur við það að konan hafi gripið í kynfæri hans. Konan ótrúverðug Dómnum þótti framburður allra lögreglumannanna trúverðugur og samrýmast. Framburður konunnar hafi hins vegar verið ótrúverðugur þegar hún neitaði alfarið að hafa gripið um kynfæri mannsins. „Framburður ákærðu um að hún hafi ekki haft ásetning til að viðhafa óviðeigandi kynferðislega hegðun eða kynferðislegt tal, eða að eiga í átökum við lögreglu í umrætt sinn, er einnig ótrúverðugur, enda er hann í mótsögn við önnur gögn málsins, en meðal annarra gagna eru myndbandsupptökur þar sem ákærða heyrist ræða kynferðisleg mál við lögreglumenn, auk þess sem hún sést ítrekað sparka í átt að þeim,“ segir í dómnum. Það er talið hafið yfir allan skynsamlegan vafa að konan hafi viðhaft þá háttsemi sem hún var ákærð fyrir. Tæp þrjú ár liðu frá broti fram að dómi og er drátturinn ámælisverður að mati dómsins. Konan hlaut tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm. Þá þarf hún að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns sem námu sjö hundruð þúsund krónum.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Lögreglan Reykjavík Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira