Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. september 2026 18:11 Runólfur Ólafsson er framkvæmdarstjóri FÍB Vísir/arnar Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur að nýfallinn dómur í Noregi vegna ólögmætra gjalda á bílastæði geti verið fordæmisgefandi á Íslandi. Innheimtufyrirtækinu Riverty var gert skylt að greiða norskum bílstjórum hundruð milljóna norskra króna. „
Um er að ræða stærstu hópmálsókn í sögu Noregs á sviði neytendaréttar. Dómurinn markar því tímamót í baráttu neytenda gegn starfsháttum bílastæðafyrirtækja á Norðurlöndunum,“ segir í tilkynningu á heimasíðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Málið var höfðað af norska neytendaráðinu fyrir hönd hundraða þúsunda bílstjóra sem höfðu fengið senda reikninga eftir að hafa lagt í bílastæði. Málið var höfðað gegn Riverty sem hafði fyrir hönd bílastæðafyrirtækja innheimt gjöld sem kölluð voru „borga seinna“ og „leggja & fara“. FÍB segir þau gjöld sambærileg gjöldum í gegnum smáforrit hér á landi. Héraðsdómur Noregs taldi að gjöldin brytu gegn norskum lögum um fjármálasamninga og væru því ólögmæt. Riverty þarf því að endurgreiða gjöldin auk þriggja prósenta vaxta og dráttarvaxta sem samsvarar um þrjú hundruð milljónum norskra króna (rúmum 3,9 milljörðum íslenskra króna). Fyrirtækið hyggst áfrýja dómnum. „FÍB hefur um langt skeið bent á vaxandi „græðgisvæðingu“ á bílastæðum í einkaeigu. Félagið hefur sérstaklega gagnrýnt háar vangreiðslu- og vanrækslugjaldkröfur sem sendar eru bíleigendum, oft beint í heimabanka og án fullnægjandi skýringa.“ Félagið og Neytendasamtökin kröfðust þess árið 2025 að gripið yrði til aðgerða vegna innheimtuaðgerða bílastæðafyrirtækja. Neytendastofa hafi þegar sektað fjögur bílastæðafyrirtæki fyrir brot á lögum um góða viðskiptahætti og reglum um verðmerkingar. FÍB hyggst fylgjast áfram með þróun málsins í Noregi en það sé fordæmisgefandi og geti haft mikla þýðingu fyrir íslenska bíleigendur. Á sama tíma haldi þau áfram að þrýsta á íslensk stjórnvöld um skýrari reglur og gagnsæi í gjaldtöku bílastæðafyrirtækja.
Bílastæði Noregur Dómsmál Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Fleiri fréttir „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira