Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar 16. september 2026 07:45 Fórnarkostnaður háskólamenntunar er viðfangsefni nýlegrar greinar á Vísi eftir Hrafnkel Tuma Kolbeinsson, formann Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS). ”Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast” er yfirskrift greinarinnar sem fjallar um fjárhagslegar hindranir í vegi háskólamenntunar á Íslandi, þar sem ungt fólk þarf oft að fórna margra ára tekjum, lífeyrissparnaði og möguleikum á húsnæðiskaupum til að afla sér menntunar. Hvatinn til háskólanáms sé þess vegna takmarkaður enda sé hlutfall ungs fólks með háskólamenntun hér á landi undir meðaltali OECD og staðan sérstaklega slæm hjá ungum körlum. Full ástæða er til þess að taka undir þær áhyggjur sem þarna eru settar fram, enda gæti sá vandi sem um er rætt verið úr sögunni nú þegar. Leiðin til lausnar er nefnilega til og hefur verið það um nokkra hríð. Fjarnám er leiðin Undirrót vandans liggur í aðgenginu, sem er sjálft fyrirkomulag háskólanámsins. Hefðbundin mynd af námsmanni sem flytur búferlum, hættir að vinna í nokkur ár og lifir á lánum og lágum tekjum á ekki lengur við um alla – sem betur fer. Þökk sé fjarnáminu sem þegar hefur rutt sér til rúms, og háskólarnir hafa í ríkari mæli tileinkað sér. Háskólinn á Bifröst hefur um árabil helgað sig því að veita hágæða háskólanám í fjarnámi, og er „í fararbroddi“ á því sviði þar sem nánast allt námsframboð háskólans er fjarkennsla. Með því er fólki gert kleift að stunda háskólanám óháð búsetu, atvinnuþátttöku og þjóðfélagsstöðu. Við segjum stundum að við séum „háskóli í heimabyggð“ þar sem námið sem við veitum eigi sér engin landamæri. Sérstaklega er áhugavert, í ljósi umræðunnar um fórnarkostnaðinn, að líta á reglubundnar kannanir sem Háskólinn á Bifröst gerir meðal útskrifaðra nemenda sinna. Þær sýna að allt að 76% nemenda halda áfram fullri atvinnuþátttöku samhliða námi og 16% til viðbótar eru í hlutastarfi. Með öðrum orðum eru rúmlega níu af hverjum tíu nemendum áfram virkir á vinnumarkaði á meðan þeir stunda háskólanám. Þetta breytir forsendunum verulega frá því sem áður var, því nemendur þurfa síður að velja á milli vinnu og náms, heldur geta þeir byggt hvort tveggja upp samtímis. Sveigjanlegt skipulag og lotukerfi gera nemendum einnig kleift að dreifa námi sínu yfir lengri tíma ef aðstæður krefjast þess. Þannig minnkar tekjutap sem annars gæti fylgt námi og auðveldara verður að samræma fjölskyldulíf, atvinnuþátttöku og menntun. Engir átthagafjötrar Niðurstöður úr könnun meðal útskrifaðra nemenda Háskólans á Bifröst sýna einnig að 41% þeirra sem voru utan höfuðborgarsvæðisins fyrir nám halda áfram búsetu á landsbyggðinni eftir útskrift. Menntunin verður þannig ekki afl sem dregur fólk til höfuðborgarsvæðisins heldur getur styrkt byggðir landsins. Þegar fólk getur aflað sér háskólamenntunar án þess að yfirgefa heimabyggð eða segja upp starfi hefur það ótvíræða samfélagslega þýðingu. Jafnframt telja 60% útskrifaðra – aðeins átján mánuðum eftir brautskráningu - að nám á Bifröst hafi leitt til hærri launa og 97% mæla með námi við skólann. Það bendir til þess að nemendur upplifi bæði raunverulegan ávinning af náminu og sterka tengingu þess við atvinnulíf og starfsþróun. Síðast en ekki síst vekur athygli hversu ánægðir nemendur eru með námið. Í gæðakönnun árið 2024 töldu 94% núverandi nemenda sig myndu mæla með Háskólanum á Bifröst, 90% töldu skólann uppfylla væntingar sínar og 97% sögðust treysta starfsfólki hans. Þegar nemendur sjálfir nefna helstu kosti námsins eru það ekki glæsilegar byggingar eða staðsetning sem koma fyrst upp í hugann heldur fjarnám, sveigjanleiki, verkefnamiðuð kennsla, persónuleg þjónusta og skipulag. Aðgengi er lykilatriði Aðgengi og þjónustuviðmót eru þess vegna lykilþættir þegar rætt er um mikilvægi menntunar í samfélagi sem gerir sífellt ríkari kröfur um sérfræðiþekkingu, nýsköpun og aukna framleiðni. Fyrir þjóð sem vill halda uppi háu menntunarstigi hlýtur markmiðið því að vera það að fólk þurfi ekki að velja milli náms og atvinnu, heldur geti það stundað hvort tveggja samtímis. Leiðin að því marki er fyllilega fær. Reynslan frá Háskólanum á Bifröst bendir til þess að hún sé farsæl. Höfundur er rektor Háskólans á Bifröst. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Skóla- og menntamál Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun