Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir, Guðmundur Ármann Pétursson, Stefanía Hulda Marteinsdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir skrifa 16. september 2026 09:32 Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er boðuð 15,9% hækkun kílómetragjalds. Fyrir fjölskyldur fatlaðra barna bætist hún við kostnað sem erfitt er að draga úr. Akstur til lækna, í þjálfun, skóla og önnur úrræði ræðst af þörfum barnsins og því hvar þjónustan fæst. Þegar þjónusta er ekki í nærumhverfi barnsins þurfa foreldrar að sækja hana annað. Þeir verja tíma í ferðirnar, bera kostnaðinn og greiða ríkinu fyrir hvern ekinn kílómetra. Því lengra sem er í þjónustuna, þeim mun hærri verður reikningurinn. Fyrir sum einhverf börn eru almenningssamgöngur ekki raunhæfur kostur. Áreiti, bið og ófyrirsjáanleiki geta gert ferðina óviðráðanlega. Bíllinn getur líka verið staður þar sem barn finnur ró þegar annað bregst. Sá akstur er hluti af daglegri umönnun sem sést illa í almennum forsendum skattlagningar. Þessar fjölskyldur geta ekki einfaldlega brugðist við hækkuninni með því að aka minna. Barnið þarf áfram að komast í skólann, til læknisins og í þjálfunina. Þegar valkostirnir vantar verður hækkunin að auknum kostnaði við að sinna þörfum barnsins. Í reglum um bifreiðagjald er þegar tekið tillit til stöðu þessa hóps. Þeir sem fá umönnunargreiðslur vegna örorku barns geta fengið bifreiðagjald fellt niður af einni bifreið, að uppfylltum skilyrðum. Sú niðurfelling nær hins vegar ekki til kílómetragjalds. Stjórnvöld viðurkenna þannig þörfina fyrir ívilnun vegna bílsins en veita ekki sambærilega ívilnun vegna notkunar hans. Kílómetragjaldið kom í stað bensín- og olíugjalda við breytinguna í ársbyrjun 2026. Því verður ekki allur reikningurinn talinn nýr viðbótarkostnaður hjá öllum bíleigendum. Það breytir þó engu um áhrif fyrirhugaðrar hækkunar á fjölskyldur sem þurfa að aka mikið og hafa lítið svigrúm til að breyta því. Jafnræði verður ekki tryggt með því einu að rukka alla samkvæmt sömu gjaldskrá. Það þarf líka að horfa til þess hvers vegna fólk þarf að aka og hvort það hafi raunverulegt val. Þegar fötlun barns og staðsetning þjónustu kalla á aukinn akstur eiga stjórnvöld að taka tillit til þess. Alþingi ætti að nýta afgreiðslu fjárlaga og tengdra lagabreytinga til að tryggja undanþágu frá kílómetragjaldi fyrir þá sem njóta niðurfellingar bifreiðagjalds vegna umönnunar fatlaðs barns. Verði önnur leið valin þarf hún að veita sambærilegan fjárhagslegan létti og vera einföld í framkvæmd. Foreldrar þurfa ekki enn eitt umsóknarferlið til að sanna þörf sem hefur þegar verið metin. Fjölskyldur fatlaðra barna bera þegar mikla ábyrgð á að brúa bilið milli þarfa barnanna og þeirrar þjónustu sem þeim stendur til boða. Fjárlög næsta árs eiga að minnka þá byrði. Fyrirhuguð hækkun kílómetragjalds gerir hið gagnstæða nema gripið verði til mótvægisaðgerða. Alma Ýr Ingólfsdóttir - formaður ÖBÍ réttindasamtaka Guðmundur Ármann Pétursson - formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar Stefanía Hulda Marteinsdóttir - framkvæmdastjóri Einhverfusamtakanna Vigdís Gunnarsdóttir - stjórnarmaður Einhverfusamtakanna Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma Ýr Ingólfsdóttir Fjárlagafrumvarp 2027 Málefni fatlaðs fólks Félagsmál Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar