Á allt Ísland heima á höfuðborgarsvæðinu? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 16. september 2026 17:00 Á íbúafjöldi einn að ráða þingstyrk þegar aðgangur að ríkisvaldinu, þjónustu og opinberum störfum er jafn ójafnt dreifður og raun ber vitni? Ríkisvaldið er þegar samþjappað á höfuðborgarsvæðinu. Þar búa um 64% landsmanna en þar eru um 70% allra ríkisstarfa. Reykjavík er þjónustustaður ríkisins með höfuðstöðvar stjórnsýslu og mjög margra ríkisstofnana. Þetta er ekki söguleg tilviljun heldur langvarandi samþjöppun stjórnsýslu, fjármála, viðskipta, menntunar og menningarstofnana. Ríkið hefur gripið til sérstakra aðgerða og færa til óstaðbundin störf en þau störf leka heim frá landsbyggðunum aftur til höfuðborgarsvæðisins. Óstaðsett störf eru því falskt öryggi. Auðlindirnar dreifðar en valdið samþjappað Stærstur hluti útflutningsgreina sem afla þjóðarbúinu gjaldeyris byggir á auðlindum, innviðum og starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins. Árið 2025 voru sjávarafurðir 38,9% útflutningstekna og ál og álafurðir 34,5%. Stór hluti þeirrar framleiðslu er eðli máls samkvæmt bundinn sjávarbyggðum, höfnum, orkuöflun og stóriðju utan höfuðborgarsvæðisins. Ferðaþjónustan skilaði 478,3 milljörðum króna í útflutningstekjur árið 2025 og þar eru náttúra og áfangastaðir um allt land grunnur verðmætasköpunarinnar, þó stór hluti fyrirtækja, flugs og þjónustu sé einnig á suðvesturhorninu. Auðlindirnar eru víða um land, verðmætasköpunin dreifist um landið en stjórnsýsla, sérhæfð þjónusta og ríkisstörf safnast í ríkari mæli á einn stað. Hvað erum við nákvæmlega að jafna? Ef þingstyrkur á í auknum mæli að fylgja mannfjölda verður að horfa á hina hliðina líka. Íbúi á höfuðborgarsvæðinu býr nær Alþingi, ráðuneytum, höfuðstöðvum stofnana, stærsta háskólanum, stærsta sjúkrahúsinu og stærsta vinnumarkaði landsins. Stór hluti opinberrar stjórnsýslu er þegar staðsettur í nærumhverfi viðkomandi. Íbúi á Raufarhöfn, Patreksfirði eða Djúpavogi býr í samfélagi þar sem hver opinber þjónustan hverfur á eftir annarri og ákvarðanir um þá þjónustu eru teknar hundruð kílómetra í burtu. Alþingi er fulltrúasamkoma alls landsins, þar á meðal svæða sem hafa allt annað aðgengi að miðlægu ríkisvaldi. Höfðatala eða heilt land? Við getum ekki fyrst miðstýrt stjórnsýslunni, ríkisstofnununum, sérfræðiþjónustunni og stórum hluta opinberu starfanna á höfuðborgarsvæðið og síðan sagt að eina sanngjarna mælistikan á pólitískt vægi sé höfðatalan. Á Alþingi aðeins að endurspegla hvar fólkið býr eða líka tryggja að ólík landsvæði hafi raunverulega rödd þar sem sameiginlegum gæðum og fjármunum er ráðstafað? Hvað gerist þegar samfélög veikjast? Fólki fækkar, störfum fækkar og þjónusta hverfur. Erfiðara verður að manna skóla, heilbrigðisþjónustu, löggæslu, björgun og atvinnulíf. Þekking tapast, fyrirtæki eiga erfiðara með að vaxa og samfélög missa getu til að nýta þau verðmæti sem eru á svæðinu. Á sama tíma eykst álagið þar sem fólkið safnast saman. Landið verður ekki minna þótt fólkinu fækki. Við þurfum áfram að nýta auðlindirnar, sækja sjóinn, framleiða orkuna, reka hafnir, sinna ferðafólki, halda uppi samgöngum og gæta lands og innviða. Er skynsamlegt fyrir þjóðina að leggja sífellt fleiri egg í sömu körfuna. Lausnin er jú að færa þjóðina nær þjónustunni. Það er miklu einfaldara en að færa þjónustuna nær þjóðinni. Höfundur er kennari og skólastjórnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmar Bogi Hafliðason Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun