Celtic og Rangers áfrýja Stefán Árni Pálsson skrifar 25. september 2026 22:30 Stuðningsmenn beggja liða réðust inn á völlinn eftir leikinn umrædda. Steve Welsh/PA Images via Getty Images Celtic og Rangers hafa áfrýjað ákvörðun skoska knattspyrnusambandsins um að bæði félög þurfi að leika næstu heimaleiki sína í skosku bikarkeppninni fyrir luktum dyrum.
Félögin hafa einnig áfrýjað 100.000 punda sekt sem þau fengu hvort um sig eftir óeirðir í kjölfar bikarleiks liðanna á Ibrox í 8-liða úrslitum síðasta tímabils. Celtic vann leikinn eftir vítaspyrnukeppni. Áfrýjunarmálin verða tekin fyrir hjá skoska knattspyrnusambandinu mánudaginn 26. október. Bæði félög voru jafnframt vöruð við því að þau gætu þurft að leika annan heimaleik án áhorfenda ef óásættanleg hegðun myndi endurtaka sig. Lögreglan í Skotlandi handtók 43 einstaklinga eftir að stuðningsmenn liðanna lentu í átökum að leik loknum í mars. Lögreglumenn og öryggisverðir slösuðust í óeirðunum og hlutum og flugeldum var kastað. Óháð úttekt sem skoska knattspyrnusambandið lét gera komst að þeirri niðurstöðu að raunveruleg og fyrirsjáanleg hætta hefði verið á troðningi vegna þess að stuðningsmenn úr svokölluðum Ultra-hópum fóru fram hjá lögreglu og öryggisvörðum í miklum fjölda. Celtic gagnrýndi upphaflega refsinguna harðlega og sagði hana ósanngjarna í ljósi þess að stuðningsmenn félagsins hefðu aðeins farið inn á völlinn í kjölfar sigursins. Félagið benti jafnframt á að það hefði verið gestaliðið og bæri því ekki ábyrgð á öryggisráðstöfunum á Ibrox.
Skoski boltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth | Heldur martröðin áfram? Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Liverpool - Brighton | Heldur óvænt gengi Brighton áfram? Enski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton | Heldur óvænt gengi Brighton áfram? Manchester United - Bournemouth | Heldur martröðin áfram? Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark Kimi Antonelli á ráspólnum á morgun „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ „Madrid með Mourinho vinnur titla“ „Markmið hjá þessum klúbbi að vinna sem flesta titla“ „Við ætlum bara að bæta í og gera enn þá betur“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Sjá meira