Fótbolti

Sjáðu mörk úr leik Ís­lands og Eist­lands á­samt vítavörslu Hákons

Andri Broddason skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen kom Íslandi í forystuna með góðum skalla.
Andri Lucas Guðjohnsen kom Íslandi í forystuna með góðum skalla. Anton/Vísir

Hér koma öll helstu atvik úr leik Íslands og Eistlands í Þjóðadeild karla í fótbolta.

Ísland stýrði fyrri hluta leiksins en eftir sem leið á fyrri hálfleikinn byrjaði Eistland að sækja í sig veðrið. Liðin virust fara jöfn til búningsherbergja en mark Andra Lucasar heldur Íslandi í 1-0 forystu í hálfleik.

Snemma í seinni hálfleik fékk Eistland vítaspyrnu og fór Kevor Palumets á punktinn fyrir Eista. Hákon Rafn Valdimarsson vissi nákvæmlega hvert Palumets ætlaði að skjóta og varði vítið glæsilega og náði Ísland að halda forystunni.

Ekki löngu eftir vítaspyrnuna fer eistneska liðið að sækja í sig veðrir og sendir Rasmum Peetson frábæra fyrirgjöf inn í vítateig Íslands. Þar var Maksim Paskotsi á tánum og náði að skalla boltann fram hjá Hákoni í markinu og staðan orðin jöfn 1-1.

Klippa: 1-1 Eistland jafnar metin með skallamarki



Fleiri fréttir

Sjá meira


×