Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Andri Broddason skrifar 26. september 2026 21:31 Harry Kane, fyrirliði Englands, klúðraði vítaspyrnu gegn heimsmeisturum Spánar. Marc Atkins/Getty Images Það var fjörugur leikur sem beið áhorfenda þegar England tók á móti heimsmeisturum Spánar. Miklar sviptingar urðu í leiknum og fengu bæði lið góð færi en Spánn endaði á því að vinna leikinn 3-2.
Lið Spánar var ekki lengi að komast í forystu leiksins en Lamine Yamal skoraði fyrsta markið á annarri mínútu leiksins. Hann tók boltann af Marc Guehi sem var klaufi í vörninni og náði Yamal að nýta sér það til þess ítrasta. Á 36. mínútu náði enska liðið að svara með frábærri skyndisókn. Anthony Gordon slapp inn fyrir vörn Spánar eftir frábæra sendingu frá Jude Bellingham og náði hann að klára færið vel fram hjá Unai Simon í marki Spánar. Enska liðið var langt því frá að vera hætt og gaf Nico O‘Reilly frábæra fyrirgjöf beint á kollinn á Harry Kane. Hann skallaði hann í átt að marki en Marc Cucurella reyndi að fara fyrir boltann. Hann náði því ekki og truflaði Simon í markinu og endaði boltinn á því að leka inn af Cucurella. England var því með 2-1 forystu í hálfleik og virtist eiga góðan möguleika á því að sækja sigur. Staða Englands batnaði enn frekar þegar liðið fékk vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik. Kane fór á punktinn en hann rann hjá boltanum og endaði boltinn á að syngja í þverslánni. England var með gullið tækifæri til þess að komast tveimur mörkum yfir en það fór forgörðum og heimsmeistararnir voru ekki lengi að refsa. O‘Reilly var með boltann á vallarhelmingi Englands en gaf lélega sendingu beint á Dani Olmo, leikmann Spánar. Hann lét boltann rúlla áfram á Alex Baena sem skoraði fram hjá James Trafford í marki Englendinga. View this post on Instagram A post shared by Selección Española Masculina de Fútbol (@sefutbol) Heimsmeistararnir voru langt því frá hættir og náði varamaðurinn, Mikel Oyarzabal, að skora sigurmark Spánar. Baena gaf frábæra stoðsendingu á Oyarzabal sem náði að klára færið vel með mikilli yfirvegun. View this post on Instagram A post shared by England football team (@england) Þetta reyndist lokamark leiksins og getur England farið svekkt heim eftir að hafa fengið gullin tækifæri til þess að sækja sigur. Heimsmeistararnir náðu að sýna að ef tækifæri gegn þeim eru ekki nýtt þá er liðið fljótt að refsa.
Enski boltinn Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti