Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Andri Broddason skrifar 27. september 2026 18:13 Ekki er víst hvað gerðist við Patrick Dorgu eða hvað hann verður lengi frá. Ulrik Pedersen/Getty Images Þrír leikir fóru fram í A- og B-deild Þjóðadeildarinnar í dag. Holland rétt náði að sækja 2-1 sigur á Serbíu, Danmörk vann Wales sannfærandi 2-0 og Austurríki vann öruggan 3-1 sigur á Kosovo.
Serbía tók á móti Hollandi og voru gestirnir með yfirhöndina í leiknum nær allan leikinn. Á 30. mínútu var brotið á Crysencio Summerville inni í vítateig Serbíu og fékk Holland vítaspyrnu. Mexx Meerdink fór á punktinn og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark fyrir Holland. Staðan var 1-0 í hálfleik en í fyrstu sókn seinni hálfleiksins náði Serbía að jafna metin. Bart Verbruggen varði gott skot frá Serbum en boltinn datt fyrir Luka Jovic sem skoraði með sinni fyrstu snertingu í leiknum. Holland var sterkari aðilinn en liðið átti í erfiðleikum með að komast aftur í forystuna þangað til á 70. mínútu þegar Meerdink skoraði sitt annað mark eftir að hafa leikið á Vanja Milinkovic-Savic í marki Serbíu. Það reyndist lokamark leiksins og náði Holland að vinna 2-1 sigur þökk sé framherjanum Meerdink. Aukaspyrnur urðu uppskriftin að mörkum Danir lentu í áfalli þegar aðeins hálftími var búinn af leiknum þegar Patrick Dorgu, leikmaður Manchester United, settist niður og virtist sárþjáður. Hann varð ekki fyrir neinu höggi og því óvíst hvað hrjáði unga Danann. Bæði lið áttu erfitt með að skapa sér góð færi í fyrri hálfleik þar sem varnarvinna beggja liða var góð. Það vantaði snerpu í sóknarleik beggja liða. Ísinn brotnaði þó þegar Mikkel Damsgaard tók aukaspyrnu og gaf frábæra sendingu inn í teig Wales. Þar reyndi Ben Davies að koma boltanum frá en endaði á því að skora í sitt eigið mark. Við fyrsta markið var mikill léttir á liði Danmerkur sem bætti öðru marki við á 66. mínútu. Uppskriftin var sú sama og í fyrra marki Danmerkur þar sem Damsgaard tók sendi boltann í teiginn úr aukaspyrnu. Þar datt boltinn fyrir Gustav Isaksen sem skaut á markið og tvöfaldaði forystu Danmerkur. Það reyndist lokamark leiksins og vann Danmörk öruggan 2-0 sigur á heimavelli. Austurríki komið á topp riðilsins Heimamenn í Austurríki byrjuðu leikinn gegn Kosovo strax sem sterkara liðið og gáfu gestunum fá tækifæri til þess að sækja. Á 23. mínútu tók Romano Schmid aukaspyrnu og gaf fyrirgjöf inn í teig Kosovo. Þar náði varnarmaðurinn David Affengruber að skalla boltann í netið. Eftir að Austurríki náði forystunni fengu gestirnir lítið andrými í leiknum og rétt áður en flautað var til hálfleiks náði Chukwubuike Adamu að tvöfalda forystu Austurríkis. Heimamenn voru því með tveggja marka forystu þegar flautað var til hálfleiks og var ekkert sem benti til þess að leikurinn yrði öðruvísi í þeim seinni. Kosovo gerði þrefalda skiptingu í hálfleik sem hleypti smá lífi í spilamennsku liðsins. Sú orka var þó drepin niður þegar Carney Chukwuemeka skoraði þriðja mark Austurríkis og fengu heimamenn aftur stjórn á leiknum. Gestirnir fengu líflínu þegar markaskorarinn Affengruber braut á Valmir Matoshi í sínum eigin vítateig og fékk Kosovo vítaspyrnu. Edon Zhegrova fór á vítapunktinn og skoraði af miklu öryggi en ef liðið ætlaði að sækja úrslit í leiknum þá þurftu fleiri mörk að koma. Þau urðu ekki fleiri og er Austurríki þá á toppi þriðja riðils B-deildarinnar eftir sigur á bæði Ísrael og Kosovo.
Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti