Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Tómas Arnar Þorláksson skrifar 28. september 2026 09:08 Narfi Hjartarson vísir/facebook/vilhelm „Það er líka mannasaur og mikið af blautþurrkum af því að fólk fer í útivist og vill vera tandurhreint. Þá fer það með fullan poka af Kleenex. Það skilur þetta eftir út um allar koppagrundir.“
Þetta segir Narfi Hjartarson, skógarvörður Þjóðskóganna á Vesturlandi, í samtali við Bítið í morgun. Hann birti á dögunum færslu á Facebook-hópnum Funga Íslands þar sem hann vakti athygli á því að þótt að aukinn áhugi á sveppum hér á landi sé af hinu góða fylgi því ákveðnar skuggahliðar. Mannasaur og einnota hanskar úti um allt Narfi segir sveppaáhuga hafa verið til staðar hér á landi um langt skeið. Það hafi þó farið verulega vaxandi undanfarin ár. „Þetta voru svona fáeinir aðilar hérna í den sem gátu gengið að skógunum vísum alveg stútfullum af sveppum. Það var svona gullna tímabilið. Áhuginn hefur aukist mjög mikið út af aðgengi að upplýsingum. Heimildarmyndir hafa verið gefnar út, bæði erlendis og hér á landi,“ segir hann og heldur áfram: „Þetta eru svolítið dularfullar verur. Þær eru ekki dýr eða plöntur heldur sveppir. Þetta er mjög áhugavert og þetta er lostætt og getur líka verið banvænt eða vímugefandi,“ segir hann og skellir upp úr. Hann tekur fram að svepparíkið hér á landi sé nokkuð fjölbreytt og telur upp nokkrar tegundir. Þrátt fyrir að það sé jákvætt að fólk sækist í auknum mæli í náttúruna dragi það dilk á eftir sér. „Skuggahliðarnar eru að sumir eru að skilja eftir sig alveg ótæpilegt magn af rusli og þá er þetta ekki bara umbúðir af nesti eða eitthvað svoleiðis. Það er líka mannasaur og mikið af blautþurrkum af því að fólk fer í útivist og vill vera tandurhreint. Þá fer það með fullan poka af Kleenex. Það skilur þetta eftir út um allar koppagrundir. Þeir sem eru mest í þessu eru í latex-hönskum og öðrum einnota hönskum og skilja þetta eftir út um allt. Þeir vilja ekki verða skítugir á puttunum.“ Það fellur í verkahring landvarða og annarra að þrífa umræddan úrgang. Hann segir það skiljanlegt að einhverju leyti að fólk vilji ekki að lykt og litur úr sveppunum festir á höndum viðkomandi. Fólk eigi samt sem áður að hafa sóma til þess að taka til eftir sig. Um tíu manns tíni upp sveppi í kílóatali og eyðileggi náttúruna Hann vekur einnig athygli á því að sumir virðast hálfgerðir atvinnumenn í sveppatínslu. „Það eru kannski sjö til tíu aðilar sem að eru mjög afkastamiklir og koma hérna nær hvern dag yfir sveppatímabilið á virkum dögum, á meðan flestir eru í vinnu. Þeir ná að sópa þetta upp og þeir eru ekkert mikið að hugsa um að skilja eftir mjög unga sveppi eftir fyrir næsta mann. Það eru alls konar siðferðisreglur sem þarf að hafa í huga þegar maður er að tína. Þessir aðilar eru að tína kannski fjölmörg kíló á dag. Mig grunar að sumir séu að selja þetta.“ Má tína sveppi úti í náttúrunni og selja þá? „Það er bannað. Maður getur það ekki nema með leyfi. Það er eins og ég myndi hoppa inn á tún hjá einhverjum og fara að heyja og selja heyið til hestabænda í Reykjavík.“ Hann segist hafa reynt að eiga í samskiptum við viðkomandi aðila. Hann telur sig hafa heimildir til að reka fólk úr skóginum en hefur ekki gripið til þess enn sem komið er. Hann leggi mest upp úr að höfða til siðferðis fólks og stuðla að sjálfbærni við tínsluna. „Þessir stærstu eru með verkfæri með sér. Hrífur til dæmis og eru hreinlega að fletta botngróðrinum af skógarbotninum og þetta er bæði ljótt, leiðinlegt og mjög slæm umgengni. Þetta er vont fyrir náttúruna. Fólk getur spillt þessum sveppastóðum.“
Sveppir Bítið Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira