Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. september 2026 12:00 Vilborg Ása segir ræðuna hafa endurspeglað utanríkisstefnu Íslands. Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem hún beindi spjótum sínum að Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur vakið mikla athygli. Stjórnmálafræðingur segir ræðuna í takti við íslenska utanríkisstefnu, þó í henni megi finna harðari tón en áður hafi verið sleginn.
Í ræðunni sagði Þorgerður siðferðislega hugleysingja vera þá sem neita að semja um frið, komi í veg fyrir að mannúðaraðstoð berist til þeirra sem þurfi og virði alþjóðalög að vettugi. Þar vísaði hún til orða Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísrael úr ræðustóli allsherjarþingsins á fimmtudag þar sem hann sagði að ef það væru fleiri siðferðislegir hugleysingja í salnum, þá mættu þeir líka yfirgefa salinn en tugir fulltrúa höfðu gengið út þegar hann hóf ræðu sína. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir ljóst að í ræðunni kveði harðari tón um ástand mála fyrir botni Miðjarðarhafs en áður hjá utanríkisráðherra. „Það gerir það óneitanlega og þetta hefur verið ákveðin þróun síðustu árin og í takti við aðgerðir og orð þeirra Evrópuríkja sem hafa verið að ganga hvað harðast gegn Ísraelsstjórn í þessum efnum. Við sáum auðvitað síðast að Ísland var hluti af áformum um viðskiptaþvinganir á landtökubyggðir Ísraelsmanna í Palestínu þannig þetta kemur í kjölfarið á því.“ Ræðan hefur vakið mikla athygli og meðal annars verið til umfjöllunar miðla á borð við Al Jazeera. Vilborg segir tóninn helstu ástæðu þess en þó harðari tónn sé sleginn sé ekki um að ræða breytingar á utanríkisstefnu Íslands, Ísland eigi allt sitt undir því að borin sé virðing fyrir alþjóðalögum og rödd þess geti skipt máli. „Þetta er náttúrulega í samræmi við stefnu Íslands hvað varðar þessi mál og stuðning Íslands við tveggja ríkja lausnina. Það er einmitt það sem að dregið er fram í yfirlýsingu um fyrirhugaðar viðskiptaþvinganir á landtökubyggðir að það er þetta hérna að landtökubyggðirnar og aðgerðir Ísraels eigi að grafa undan tveggja ríkja lausninni þannig að þetta er allt svona innan þess ramma. Og svo auðvitað hérna er þetta algjörlega í samræmi við sem sagt stefnu Íslands þegar kemur að virðingu alþjóðalaga.“
Utanríkismál Átök í Ísrael og Palestínu Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Öryggis- og varnarmál Sameinuðu þjóðirnar Tengdar fréttir Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skaut föstum skotum að leiðtogum sem virða alþjóðalög að vettugi í ávarpi Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Hún beindi orðum sínum jafnframt sérstaklega að Benjamín Netanjahú og ummælum hans um „siðferðislega hugleysingja“ og sagði þá nafnbót frekar eiga við leiðtoga sem neita að semja um frið, hindra mannúðaraðstoð og gera lítið úr alþjóðalögum. 26. september 2026 18:34 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira
Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skaut föstum skotum að leiðtogum sem virða alþjóðalög að vettugi í ávarpi Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Hún beindi orðum sínum jafnframt sérstaklega að Benjamín Netanjahú og ummælum hans um „siðferðislega hugleysingja“ og sagði þá nafnbót frekar eiga við leiðtoga sem neita að semja um frið, hindra mannúðaraðstoð og gera lítið úr alþjóðalögum. 26. september 2026 18:34