September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir, Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, Gunnar Sigurðsson, Eiður Stefánsson, Andri Reyr Haraldsson og Jakob Tryggvason skrifa 30. september 2026 07:30 Snemma í mars sl. varð ljóst að forsendur kjarasamninga væru ekki eins líklegar til að halda og almennt hafði verið talið. Verðbólga var á uppleið. Gjaldskrár hins opinbera höfðu hækkað, verðhækkanir fyrirtækja voru svo gott sem daglegt brauð og ekkert bólaði á langþráðri tiltekt í húsnæðismálum, sem eru stærsti orsakavaldur verðbólgunnar. Bandaríkin og Ísrael höfðu hafið ólöglegt árásarstríð gegn Íran. Forsendur kjarasamninga voru líklegar til að bresta óháð olíuverðhækkunum og að þeim meðteknum var ljóst að skellur haustsins gæti orðið enn harkalegri en ella. Strax og þessi staða varð ljós, nánar tiltekið 10. mars sl., hófst formlega samstarf VR, LÍV og Fagfélaganna um forsendur kjarasamninga, við vissum að staðan kallaði á góðan undirbúning og samheldni. Klukkan tifar enn Við hófum strax að kalla eftir aðgerðum til að bregðast við stöðunni. Að undirlagi okkar og Félags íslenskra bifreiðaeigenda leiddi ríkisstjórnin í lög framsækið verðþak á olíu og varði þannig heimili landsins fyrir margþættum áhrifum olíuverðhækkana. En lítið gekk að ná fram árangri á öðrum vígstöðvum og enn héldu verðhækkanir áfram að lita vísitölumælingarnar mánuð eftir mánuð og stjórnvöld héldu að sér höndum. Þetta var bagalegt, því að okkar mati hefði mátt ráðast í aðgerðir snemmsumars sem hefðu haft sýnileg áhrif og þannig liðkað fyrir að kjarasamningar gætu haldið. Í grein okkar „Sumar án aðgerða“ sem birtist á Vísi snemma í ágúst fórum við yfir þessa stöðu, en þá beindist athygli stjórnmálamanna og kjósenda öðru fremur að þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB. Á meðan tifaði klukkan á vinnumarkaði. Og hún tifar enn. Síðan þá hefur lítið vatn runnið til sjávar. Olíuverðþakið féll úr gildi án nokkurra aðgerða. Áhrifin af því hafa nú þegar birst í verðbólgutölum og munu ferðast þaðan í gengum alla verðtryggingarspíralana og inn í húsnæðiskostnað fólks. Ríkisstjórnin lagði fram fjárlagafrumvarp sem er eins og gert til að viðhalda verðbólgu og auka álögur á launafólk en nú hefur komið fram að það var hluti af einhvers konar vanhugsaðri leikjafræði. Fyrst þarf að viðurkenna vandann VR, LÍV og Fagfélögin hafa sent bréf á verðmótandi fyrirtæki og sveitarfélög og óskað svara um skuldbindingar þeirra gagnvart kjarasamningum. Í ljós hefur komið að fæst þeirra töldu sig yfirleitt bera einhverjar skuldbindingar gagnvart gildandi kjarasamningum, þrátt fyrir undirritaðar yfirlýsingar um að nú ættu allir að leggjast á árarnar. Sum fyrirtækjanna hafa þó risið undir ábyrgð núna og frá sveitarfélögunum berast líka jákvæðar fréttir um vilja til að stilla gjaldskrárhækkunum raunverulega í hóf. Eftir standa spjótin á ríkisstjórn og Alþingi þegar kemur að fjárlagafrumvarpinu. En vandinn er að ekkert að þessu mun vera í hendi fyrir 8. október sem er frestur stéttarfélaganna til að segja upp samningum. Það hefur verið einörð afstaða okkar hjá VR, LÍV og Fagfélögunum að ekki sé hægt að endurnýja sömu loforð og gefin voru árið 2024. Launafólk hefur verið svikið og ef byggja á upp traust í kjölfar sviksemi hlýtur að vera nauðsynlegt að byrja á að viðurkenna vandann og gangast við því sem hefur átt sér stað. Við höfum kallað eftir slíkri viðurkenningu í formi leiðréttingar til handa launafólki sem hefur setið eitt að árum. Þar höfum við horft til þess að kjarasamningbundnar launahækkanir stórra hópa okkar félagsfólks hafa verið undir verðbólgu og að þjónusta hefur verið skert við barnafólk sem átti sérstaklega að standa vörð um í gegnum verðbólgutíma. Þetta þýðir í reynd að raunlaun fólks hafa lækkað á sama tíma og húsnæðiskostnaður fjölda heimila hefur snaraukist og púsluspil barnafjölskyldna orðið erfiðara. Þetta er ekki það sem um var samið. Boltinn er hjá SA Samtök atvinnulífsins hafa gefið út að þau hyggist ekki koma til móts við launafólk með þeim hætti sem við höfum farið fram á. Engu að síður telja þau farsælast að kjarasamningar haldi gildi sínu og talað hefur verið um að nauðsyn þess að „hafa trú á verkefninu“, það er að ná niður vöxtum og verðbólgu, líkt og stefnt var að við undirritun samninga árið 2024. VR, LÍV og Fagfélögin hafa ítrekað áréttað vilja félaganna til að kjarasamningar haldi, en þó ekki þannig að launafólk haldi áfram að borga brúsann á meðan aðrir hópar eru í vari. Af virðingu við ósk SA um að „gefast ekki upp á verkefninu“ höfum við gert lokatillögu til lausnar á vandanum með það fyrir augum að kjarasamningar haldi. Við erum ekki tilbúin til að festa félagsfólk inn í áframhaldandi kjaraskerðingum og höfum því lagt til að kjarasamningar haldi en með tveimur nýjum forsenduákvæðum, annars vegar í mars og hins vegar í september. Um áramót mun skýrast hvort aðgerðir fyrirtækja beri árangur og hvort ríki og sveitarfélög standi við sitt þegar kemur að gjaldskrárhækkunum. Gangi það eftir ætti verðbólga að ganga niður og þá geta kjarasamningar runnið sitt skeið til enda. En verði það svo að stjórnvöld og fyrirtæki halli sér aftur á meðan launafólk situr uppi með Svarta Pétur verða stéttarfélögin að hafa útgönguleið úr samningunum. Tillögur um ný forsenduákvæðin miða við þetta og nú kemur í ljós hvort Samtök atvinnulífsins hafa raunverulega trú á verkefninu. Boltinn er hjá SA. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Jakob Tryggvason, formaður RSÍ. Andri Reyr Haraldsson, varaformaður RSÍ og formaður FÍR. Eiður Stefánsson, formaður LÍV. Gunnar Sigurðsson, formaður VM. Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Gunnarsdóttir Kjaramál Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun