„Langt síðan við unnum fótboltaleik“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. september 2026 21:08 Guðlaugur Victor Pálsson skoraði þriðja mark Íslands í kvöld. Mynd:KSÍ Guðlaugur Victor Pálsson skoraði þriðja mark íslenska landsliðsins er liðið vann sterkan 3-0 sigur gegn Lúxemborg í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.
Heyra mátti á fagnaðarlátunum úr klefa íslenska liðsins að sigurinn var liðinu kærkominn, og Guðlaugur tók undir það. „Já, klárlega. Það er gaman að vinna og við erum í þessu til að vinna,“ sagði Guðlaugur Victor í samtali við Stefán Árna Pálsson eftir leik. „Það er langt síðan við unnum fótboltaleik þannig að þetta var virkilega ánægjulegt.“ Ekki nóg með það að íslenska liðinu tókst að skora þrjú mörk í leik kvöldsins, heldur hélu íslensku strákarnir marki sínu hreinu í fyrsta skipti síðan í nóvember á síðasta ári. „Við vorum bara með gott skipulag og börðumst vel fyrir hvorn annan. Við gerðum vel og héldum þeim frá. Ég held að þeir hafi átt eitt skot á markið. Við vildum bara svara vel fyrir okkur eftir síðasta leik og mér fannst við gera það. Þetta var ekkert bara aftasta línan heldur voru þetta bara allir. Allir þessir ellefu leikmenn sem voru inni á vellinum,“ sagði Guðlaugur og hélt áfram. „Við gerðum vel. Það var góð orka, sem vantaði í síðasta leik. Það var fínt að hafa svarað þessu svona.“ Þá hrósaði Guðlaugur Stefáni Teiti Þórðarsyni, sem hefur leyst stöðu miðvarðar í síðustu leikjum. „Það er frábært að fá hann þarna inn. Stebbi er bara búinn að standa sig virkilega vel. Hann er ekki vanur að spila þessa stöðu, en hann er bara það góður fótboltamaður og hann er líka með þetta football intelligence. Hann hefur bara gert virkilega, virkilega vel og ég er mjög ánægður með hann eins og allt liðið.“ Að lokum gat Guðlaugur einnig leyft sér að gleðjast yfir markinu sem hann skoraði í kvöld, en það var hans sjötta mark fyrir landsliðið. „Mjög gaman að skora, virkilega. Þetta var frábær bolti frá Gylfa og gaman að sjá hann í netinu,“ sagði Guðlaugur að lokum. Klippa: Gulli Victor
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti