„Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 21:20 Arnar segist hafa gleymt því að hann sé orðinn 53 ára gamall og tognaði við að reyna gamla takta. Því gefur hann ekki kost á sér í næsta leik. Vísir Það var léttir fyrir landsliðsþjálfarann Arnar Gunnlaugsson að Ísland skyldi hafa unnið 3-0 sigur á Lúxemborg ytra í Þjóðadeild karla í fótbolta í kvöld. Arnar tognaði hins vegar í upphitun fyrir leik og finnur aðeins fyrir því.
Ísland var með öll völd langstærstan part í leik kvöldsins. Orri Steinn Óskarsson lagði upp mark á Andra Lucas Guðjohnsen snemma leiks og Andri lagði svo upp fyrir Orra fyrir hléið. Guðlaugur Victor Pálsson innsiglaði svo 3-0 sigur með skallamarki eftir hornspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar í síðari hálfleik. Arnar gat því glaðst eftir leik. „Bara frábær dagur fyrir íslenskan fótbolta. Strákarnir í 20 ára liðinu áttu frábæran leik í dag. Við vildum ekki vera neinir eftirbátar og þetta var fagmannleg frammistaða. Það er smá þroskamerki í liðinu og við tókum það til okkar sem fór úrskeiðis í síðasta leik og vorum einhvern veginn bara þéttari og ekki eins barnalegir,“ „Mér fannst eins og þeir hefðu getað spilað í marga sólarhringa án þess að skora en að sama skapi hefðum við getað nýtt betur færin okkar betur í þessum leik, sérstaklega skyndisóknir,“ segir Arnar í samtali við Stefán Árna Pálsson í Lúxemborg eftir leik. Menn reiðir inni í sér Frammistaða Íslands var sannfærandi og það var allt annað að sjá orkustig liðsins frá leik við Eista sem lauk með jafntefli á laugardaginn var. „Menn voru bara reiðir inni í sér eftir Eistlandsleikinn en samt með svalan haus. Það er stormur og við áttum það skilið, að fá gagnrýni. Við tökum það til okkar án þess þó að missa hausinn og vera litlir í sér og menn voru bara staðráðnir í því að bæta fyrir leikinn á Laugardalsvelli og það gera bara toppíþróttamenn,“ segir Arnar. Það er náttúrulega búið að gusta svolítið um þig síðustu daga og þú hefur fengið persónulega gagnrýni frá sparkspekingum. Er mikill léttir akkúrat núna? „Þetta er alveg yndislegt starf. Það er gagnrýni, það er bara flott og stundum á maður hana vel skilið, og stundum vill maður líka að það sé ekki alveg verið að taka strákana niður. Þú veist, Ísak og Hákon spiluðu á miðjunni á móti Frökkum í tvo leiki og voru stórkostlegir þar. Þannig að það er enginn að segja mér að þeir geti ekki spilað miðju líka á móti Eistlandi,“ segir Arnar og bætir við: „Þetta eru strákarnir mínir og maður vill bara vernda þá fyrir gagnrýninni en ég skil hana mjög vel. Þetta er úrslitabransi og oft er það þannig að lið sem vinnur er bara besta lið í heimi og lið sem tapar er lélegasta lið í heimi.“ „En sannleikurinn er ekki alveg svona einfaldur en við héldum bara góðum haus. Við erum núna komnir á toppinn í riðlinum og það er bara okkar að sjá til þess að við verðum þar í lok nóvember,“ segir Arnar. Meiddur og gefur ekki kost á sér Í lok viðtals skaut Stefán Árni því inn að Arnar hefði meiðst í upphitun fyrir leik og tognað aftan í læri. „Já, ég var að reyna einhverjar gamlar kúnstir og þarna gleymdi ég því að ég er 53 ára gamall og ég tognaði bara. Þetta er ekkert flóknara en það, þannig að ég gef ekki kost á mér í næsta leik,“ segir Arnar og brosir. Viðtalið má sjá í spilaranum.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti