Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Freyja Þórisdóttir skrifar 30. september 2026 19:15 Ákvörðunin liggur hjá stjórn Ríkisútvarpsins en ekki útvarpsstjóra. Á myndinni má sjá Væb-bræður en þeir unnu Söngvakeppnina í fyrra með lagið Róa. Vísir/Hulda Margrét Meirihluti stjórnarmanna Ríkisútvarpsins vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision árið 2027 nema Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni. Líkt og frægt er orðið tók Ísland ekki þátt í keppninni í ár vegna þátttöku Ísraels í keppninni og þá var heldur engin Söngvakeppni haldin, í fyrsta sinn um árabil.
Rúv greinir fyrst frá en ákvörðunin var tekin á fundi stjórnar í dag. Stjórnarmeðlimurinn Diljá Ámundadóttir Zoëga deildi bókun af fundinum á Facebook-síðu sinni en þar kemur meðal annars fram: „… beina undirritaðir stjórnarmenn því til útvarpsstjóra að hann tilkynni EBU að Ríkisútvarpið taki ekki þátt í Eurovision árið 2027 nema Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni. Fyrri áskorun til EBU um að Ísrael verði vísað úr keppninni er ítrekuð og þess óskað að útvarpsstjóri komi þeirri ítrekun á framfæri.“ Stefán Jón Hafstein formaður stjórnar Ríkisútvarpsins og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri á fundi stjórnar í desember í fyrra þegar ákvörðun var tekin um að taka ekki þátt í Eurovision 2026. Vísir/Vilhelm Þá greinir hún frá því að sex af níu stjórnarmeðlimum hafi lagt bókunina fram. Stefán Jón Hafstein formaður stjórnarinnar segir þau sex sem hafi verið sammála um að vilja sniðganga keppnina hafi viljað greina sem fyrst frá ákvörðuninni en að afstaða stjórnar sé í raun óbreytt frá því í fyrra. „Við vorum einhuga um það að engar breytingar hefðu orðið sem réttlættu það að skipta um skoðun og mér fannst rétt að skýra frá því strax að þetta væri stefnan hjá okkur,“ segir hann í samtali við fréttastofu og bætir við „vegna þess að það hafði verið svolítið gengið eftir því af fjölmiðlum og áhugamönnum hvað við ætluðum að gera og þá var hreinlegast að gera hreint fyrir sínum dyrum strax og segja að okkar mati hefur engin eðlisbreyting orðið á.“ „Þar til annað kemur í ljós“ Hann segir bókunina þýða að meirihluti stjórnar hafi greitt atkvæði um að fela útvarpsstjóra, Stefáni Eiríkssyni, að tilkynna EBU að Rúv verði ekki með í þetta skiptið. „Já, já, þetta er bara ákveðið og eins og maður segir alltaf í lífinu af því maður er orðinn gamall reyndar: „þar til annað kemur í ljós“, en það er ekkert annað komið í ljós að mínu mati.“ Stefán segir það eina sem hafa breyst frá því í fyrra vera að ástandið hafi versnað en að þrátt fyrir bókunina þá þýði þetta ekki að Ísland taki ekki þátt í Eurovision nokkurn tímann á ný. „Ég segi það alveg fullum fetum að ef Ísrael er ekki þátttakandi þá myndum við alltaf endurskoða okkar afstöðu, tel ég. Ég myndi ekki tala fyrir hönd níu manna stjórnar en ég tel að þá myndum við endurskoða okkar afstöðu því að þetta er aðalatriðið í okkar máli,“ segir hann jafnframt. Ekkert útilokað Eurovision mun fara fram í Búlgaríu á næsta ári eftir sigur Búlgara í keppninni í ár en fyrr í haust var greint frá nýjum reglum í keppninni. Nýjar reglur kveða á um að sigurþjóðir geti misst rétt til að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu. Liggur fyrir hvort Söngvakeppnin verði haldin hérna heima? „Það kom fram í umræðum á fundinum að það að taka ekki þátt í Eurovision útilokaði alls ekki að halda Söngvakeppni Íslands,“ segir Stefán en segir að ákvörðun um það muni líklegast ekki liggja fyrir næstu vikur. „Það mun væntanlega verða ákveðið fyrir áramót og mun ekki liggja fyrir fyrr en við erum búin að afgreiða fjárhagsáætlun næsta árs,“ útskýrir hann og bætir við að það sé ekki stjórnin sem taki lokaákvörðun um Söngvakeppnina. „Það stendur í starfsreglum stjórnar að allar óvenjulegar, meiriháttar og sérstakar ákvarðanir séu teknar af stjórn,“ segir hann og ítrekar „þetta er svo sannarlega slíkt.“ Ákvörðunin um Söngvakeppnina sé aftur á móti í höndum útvarpsstjóra. Fréttin var uppfærð eftir viðtal við formann stjórnarinnar.
Eurovision 2027 Ríkisútvarpið Tengdar fréttir Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Stjórn Ríkisútvarpsins hefur ekki tekið neina ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision söngvakeppninni árið 2027. Stjórnin fundar næst eftir rúmar tvær vikur en líklega mun ekkert liggja fyrir um þáttöku fyrr en í desember. 7. september 2026 14:30 Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira
Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Stjórn Ríkisútvarpsins hefur ekki tekið neina ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision söngvakeppninni árið 2027. Stjórnin fundar næst eftir rúmar tvær vikur en líklega mun ekkert liggja fyrir um þáttöku fyrr en í desember. 7. september 2026 14:30