Formúla 1

Hjólar yfir 350 kíló­metra í næstu keppni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Bottas er hjólakappi mikill.
Bottas er hjólakappi mikill. Skjáskot

Finninn Valtteri Bottas er á leið í næsta kappakstur í Formúlu 1 eftir keppni helgarinnar í Malasíu. Hann hjólar til Singapúr þar sem keppt verður næstu helgi.

Yfir 350 kílómetrar eru milli Sepang og Singapúr og sá finnski er langt kominn. Hann deildi færslu á samfélagsmiðlum í gær þar sem hann hjólaði rúmlega 56 kílómetra.

Bottas er 37 ára gamall og er á sinni fjórtándu leiktíð í Formúlu 1. Hann var lengst af með Mercedes og ók fyrir Alfa Romero/Sauber árin 2022 til 2024.

Hann varð fyrir yfirstanandi leiktíð ökuþór nýs liðs Cadillac og þurfti að hætta keppni í Malasíu um helgina. Hann er einn þriggja stigalausra ökumanna ásamt Lance Stroll og liðsfélagans Sergio Pérez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×