Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. október 2026 11:56 Fréttamaður ræddi við Simma Vill og Völu Matt um afmæli stöðvarinnar. Fjörutíu ár eru liðin frá stofnun Stöðvar 2 og af því tilefni verður sýndur afmælisþáttur í kvöld þar sem litið verður yfir farin veg og rætt við ýmsar stjörnur, gamlar og nýjar, sem settu svip sinn á stöðina. Vala Matt verður á sínum stað með græna pennan og Simmi Vill mætir með handrið sem hann braut eftirminnilega af Fokker-flugvél við tökur á Idol stjörnuleit.
Fréttamaðurinn Tómas Arnar Þorláksson leit bak við tjöldin við gerð afmælisþáttarins og ræddi við nokkra vel valda. Þeirra á meðal var auðvitað Vala Matt, sem hefur fylgt stöðinni frá upphafi, með hléum hjá öðrum miðlum. Fjörutíu ára afmæli, hvernig leggst þetta í þig? „Þetta er dásamlegt og ég er svo stolt af þessu fyrirtæki. Ég segi alltaf Stöð 2-Sýn af því þetta er byggt á gömlu Stöð 2 en að þetta skuli vera fjörutíu ár, það er náttúrulega kraftaverk,“ segir Vala Matt. Klippa: Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2 Hefði þig órað fyrir þessu þegar þið hófuð þessa vegferð? „Veistu það, við spáðum ekkert í það þá, við vorum bara í núinu og það var ógeðslega gaman og ævintýri. Og þetta er búið að vera ævintýri öll þessi ár,“ segir hún. Vala Matt í árdaga Stöðvar 2. Hún segir að þessi tímamót og 40 ára afmæli hefðu komið mörgum á óvart á sínum tíma enda þó nokkuð um efasemdarmenn á sínum tíma. Vala var auðvitað mætt með græna pennan, einkennismerkið sem hún hefur borið í sjónvarpinu í mörg ár. Þarf ég að fá mér svona penna? „Það er spurning hvort ég láti þig fá pennann þannig þú takir hann og haldir áfram með hann,“ segir Vala. „Þetta var ekkert grín“ Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi, er auðvitað ekki langt undan og tók með sér sérstakan minjagrip í tilefni dagsins. „Þetta er handrið úr Fokker-flugvél sem ég braut eftirminnilega í Idol á Akureyri einu sinni. Þá vorum við að labba út úr flugvélinni og ég renndi mér niður handriðið,“ segir Simmi. Hann og Jói voru þá að taka upp efni fyrir sjónvarpsþáttinn til að segja áhorfendum frá því að verið væri að taka áheyrnaprufur á Akureyri. Simmi sýnir Tómasi handriðið. „Við vorum búnir að gera þetta þrisvar, Jói klikkaði alltaf á textanum og í fjórða skiptið þá brotnaði handriðið. Þar sem þetta handrið er öryggisbúnaður flugvélarinnar þá gat hún ekki farið til baka. Þannig það þurfti að koma flugvirki frá Reykjavík, gera við þetta og fá samþykki frá Fokker í Hollandi til þess að fá að fljúgja henni til Reykjavíkur. Svo þurfti að bíða eftir þessum varahlutum þannig þetta varð milljónatjón, þannig þetta var ekkert grín,“ segir Simmi. „Síðan einhverjum vikum seinna færði Árni, forstjóri flugvélsins á þeim tíma, mér þetta handrið: „Idiot 2003. Sigmar Vilhjálmsson heiðursfarþegi.“,“ bætir hann við. Hér að neðan má sjá bak við tjöldin við gerð afmælisþáttarins: Auddi, Patrekur Jaime og Saga Garðars ræddu við Björn Braga.Vísir/Viktor Freyr Björn Bragi stýrir afmælisþættinum.Vísir/Viktor Freyr Nóg er um grín í þættinum.Vísir/Viktor Freyr Auddi og Patrekur Jaime huggulegir.Vísir/Viktor Freyr Sigrún Ósk, Simmi Vill og Jón Jónsson ræða málin.Vísir/Viktor Freyr Jón Gnarr, Katla Margrét og Steindi.Vísir/Viktor Freyr Vala Matt hefur fylgt stöðinni frá árdögum.Vísir/Viktor Freyr
Sýn Tímamót Fjölmiðlar Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira