Innlent

Braust inn með hníf í einni og hamar hinni

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Það er aldrei lognmolla hjá lögreglunni.
Það er aldrei lognmolla hjá lögreglunni. Vísir/Vilhelm

Lögregla var kölluð til í Kópavogi í nótt vegna manns sem reyndi að brjótast inn í íbúð. Maðurinn var vopnaður hnífi og hamri.

Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa.

Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brots á vopnalögum og í miðborginni var maður handtekinn vegna líkamsárásar.

Í Árbænum var aðstoðar lögreglu óskað á matsölustað vegna manns sem var að sögn lögreglu víðáttuölvaður og til vandræða. Hann var fjarlægður af staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×