Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar 14. október 2026 07:01 Hvað þarf námsárangur íslenskra barna að versna mikið áður en menntayfirvöld leggja allar upplýsingar á borðið? Íslenskir skólar fengu áður niðurstöður úr PISA sem gerðu þeim kleift að skoða eigin stöðu og bera hana saman við aðra skóla. Árið 2012 og 2015 voru slíkar upplýsingar teknar saman og skólar gátu nýtt sér þær í þágu nemenda. Síðan þá neitar menntamálaráðuneytið að veita skólum þessar mikilvægu upplýsingar. Hvers vegna? Ísland hefur sérstaka stöðu í PISA. Hér taka nær allir 15 ára nemendur þátt, en í flestum öðrum ríkjum er byggt á úrtaki, 42 nemendum í hverjum skóla. OECD staðfestir í landsskýrslu sinni um PISA 2022 að vegna þessarar sérstöðu Íslands, í lauslegri þýðingu: ,,Þar sem PISA-rannsóknin nær til alls þýðisins (allra nemenda) er hægt að fylgjast með niðurstöðum einstakra skóla yfir tíma“. Í ríkjum á borð við Lettland ofl, þar sem PISA byggist á úrtaki, geta þátttökuskólar fengið upplýsingar um eigin árangur í samanburði við aðra skóla. Hvers vegna er ekki unnt að veita íslenskum skólum sambærilegar upplýsingar? Af heimasíðu menntamálaráðuneytis þeirra má finna í lauslegri þýðingu: ,,…getur hver þátttökuskóli fengið upplýsingar um eigin árangur í samanburði við aðra skóla.“ Auðvitað eru niðurstöður fámennari skóla háðar tölfræðilegri óvissu. En það engin vísindaleg dyggð að halda upplýsingum leyndum vegna þess að þær eru ekki fullkomnar. Rétt er að veita upplýsingarnar með fyrirvörum og nýta þær í þágu aukins árangurs nemenda. Ekki veitir af. Nú hafa niðurstöður PISA 2025 verið birtar fyrir sjö stærstu sveitarfélögin, en ekki einstaka skóla þar sem þær nýtast einna best. Það er ekki nóg að tala um mikilvægi menntunar þegar upplýsingar sem gætu hjálpað skólum, að greina styrkleika og veikleika þeirra, berast ekki til þeirra. Skólakerfið er til fyrir nemendur. Án nemenda væri ekkert skólakerfi á því þarf ráðherra að átta sig á. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen PISA-könnun Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Hvað þarf námsárangur íslenskra barna að versna mikið áður en menntayfirvöld leggja allar upplýsingar á borðið? Íslenskir skólar fengu áður niðurstöður úr PISA sem gerðu þeim kleift að skoða eigin stöðu og bera hana saman við aðra skóla. Árið 2012 og 2015 voru slíkar upplýsingar teknar saman og skólar gátu nýtt sér þær í þágu nemenda. Síðan þá neitar menntamálaráðuneytið að veita skólum þessar mikilvægu upplýsingar. Hvers vegna? Ísland hefur sérstaka stöðu í PISA. Hér taka nær allir 15 ára nemendur þátt, en í flestum öðrum ríkjum er byggt á úrtaki, 42 nemendum í hverjum skóla. OECD staðfestir í landsskýrslu sinni um PISA 2022 að vegna þessarar sérstöðu Íslands, í lauslegri þýðingu: ,,Þar sem PISA-rannsóknin nær til alls þýðisins (allra nemenda) er hægt að fylgjast með niðurstöðum einstakra skóla yfir tíma“. Í ríkjum á borð við Lettland ofl, þar sem PISA byggist á úrtaki, geta þátttökuskólar fengið upplýsingar um eigin árangur í samanburði við aðra skóla. Hvers vegna er ekki unnt að veita íslenskum skólum sambærilegar upplýsingar? Af heimasíðu menntamálaráðuneytis þeirra má finna í lauslegri þýðingu: ,,…getur hver þátttökuskóli fengið upplýsingar um eigin árangur í samanburði við aðra skóla.“ Auðvitað eru niðurstöður fámennari skóla háðar tölfræðilegri óvissu. En það engin vísindaleg dyggð að halda upplýsingum leyndum vegna þess að þær eru ekki fullkomnar. Rétt er að veita upplýsingarnar með fyrirvörum og nýta þær í þágu aukins árangurs nemenda. Ekki veitir af. Nú hafa niðurstöður PISA 2025 verið birtar fyrir sjö stærstu sveitarfélögin, en ekki einstaka skóla þar sem þær nýtast einna best. Það er ekki nóg að tala um mikilvægi menntunar þegar upplýsingar sem gætu hjálpað skólum, að greina styrkleika og veikleika þeirra, berast ekki til þeirra. Skólakerfið er til fyrir nemendur. Án nemenda væri ekkert skólakerfi á því þarf ráðherra að átta sig á. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun