Innlent

„Út­lit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Óveðrið er í samræmi við það sem spár reiknuðu með.
Óveðrið er í samræmi við það sem spár reiknuðu með. Vísir/Vilhelm

Vakthafandi veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að veðrið sé í samræmi við það sem spár reiknuðu með. Skil lægðarinnar séu komin við landið sunnanvert þar sem sé kominn stormur og hættulegar vindhviður.

„Það er útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir og þrýstingurinn hefur fallið mjög hratt á landinu núna í nótt og svona í samræmi við það sem spár reiknuðu með,“ segir Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur hjá Veðurstofunni í samtali við fréttastofu nú í morgun.

Hann segir að kominn sé stormur sunnanlands en þar tóku appelsínugular viðvaranir gildi klukkan 05:00. Búið er að loka hringveginum frá Markarfljóti og að Vík í Mýrdal sem og í Öræfasveit.

„Það verða hættulegar hviður og mjög hvasst þarna syðst á landinu, sérstaklega núna undir Eyjafjöllum, í Mýrdalnum og í Öræfum. Það er appelsínugul viðvörun í gildi en svo gengur þetta meira og minna niður fyrir hádegi en þá versnar veðrið fyrir norðan og sérstaklega þá á Norðvesturlandi og Vesturlandi,“ bætir Hrafn við.

Þar verði vaxandi norðaustan- og norðanátt, kólnandi veður og úrkoma.

„Slydda, snjókoma og rigning á láglendi til að byrja með en breytist í snjókomu, slyddu og stórhríð á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×