Lokuðu hurðum hallarinnar eftir kvartanir leikmanna Andri Broddason skrifar 15. október 2026 13:17 Skipuleggjendur mótsins voru fljótir að bregðast vuð athugasemdum Anders Antonsen. VCG/VCG via Getty Images Opna danska meistaramótið í badminton stendur nú yfir í Óðinsvéum þar sem stærstu badmintonstjörnur heims spila. Keppendur kvörtuðu yfir vindi í höllinni og var nokkrum inngöngum í höllina lokað vegna þess.
Þrátt fyrir að mót séu haldin inni í íþróttahöllum berst vindur inn í húsið annaðhvort að utan eða úr loftræstingu hússins. Badmintonkúla er fislétt og vegur aðeins fimm grömm og því hefur vindur mikil áhrif á flug boltans. Anders Antonsen, ein skærasta badmintonstjarna Danmerkur, átti í erfiðleikum með að slá kúluna og biðlaði til skipuleggjanda mótsins að laga vandamálið. „Boltinn tekur dýfu niður, svo það er virkilega erfitt að tímasetja höggin sín. Þú sérð hvað það fara margir boltar í netið þegar vindurinn er í bakið. Það er vegna þess að boltinn tekur dýfu rétt áður en þú slærð,“ sagði Anders Antonsen í viðtali við TV2 eftir sigur hans á Cheuk Yiu Lee í 32-liða úrslitum. Skipuleggjendur mótsins voru ekki lengi að bregðast við og hafa lokað nokkrum inngöngum í keppnishöllina og sett borða fyrir. Einnig var blað límt á hurðina sem bendir á að hurðin sé lokuð vegna vinds. Íslandsvinurinn mætir heimsmeistaranum Chou Tien Chen hefur nokkrum sinnum komið til Íslands og virðist kunna vel við sig hér.Shi Tang/Getty Images Íslendingavinurinn Chou Tien Chen hefur spilað vel á mótinu og tryggði sig í 8-liða úrslitin í dag eftir nauman sigur á Koki Watanabe. Hann á erfiðan mótherja í 8-liða úrslitunum þar sem hann mætir ríkjandi heimsmeistaranum Alex Alanier frá Frakklandi. Það má því búast við æsispennandi leik þar sem báðir leikmenn hafa verið að spila upp á sitt besta á síðustu mótum Hægt er að fygljast með mótinu í beinni útsendingu á Youtube-rás BWF.
Badminton Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Arnar opnar sig og Inga Sæland fær að heyra það Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Lokuðu hurðum hallarinnar eftir kvartanir leikmanna Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Dagskráin í dag: Orri í Belgíu og fjórir leikir í Bónus-deildinni Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sokkunum fórnað og mikil spenna fyrir EM í Finnlandi Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Sjá meira